Árnessýsla
Krabbameinsfélag Árnessýslu
Stofnað: 29. maí 1971.
Félagsmenn: 387.
Stuðningshópur: Bandið, Árnessýslu. Fundir annan mánudag í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Upplýsingar gefur Rannveig Árnadóttir sími 482 3301.
Stjórn kosin á aðalfundi 26. apríl 2009:
Formaður: Jón B. Stefánsson, Geitlandi 1, 108 Reykjavík 854 8955
geitland@simnet.isVaraformaður: Eygló Aðalsteinsdóttir
Ritari: Pétur Skarphéðinsson, Launrétt 3, Laugarási, 801 Selfossi 486 8882
Gjaldkeri: Ingibjörg Jóhannesdóttir
Meðstjórnandi: Hulda Brynjólfsdóttir
Meðstjórnandi: Sigrún Ásgeirsdóttir
Meðstjórnandi: Sigurbjörg Jónsdóttir
Starfsemi 2010-2011
Starfsmaður sá um þjónustumiðstöðina á Selfossi, sem er opin 13 tíma á viku, annaðist innheimtu á árgjöldum, fræðslu, fjáraflanir, fundi og ýmislegt annað tilfallandi.
Átta sölustaðir voru fyrir Mottumars, víðs vegar um sýsluna. Pennasalan var í september. Einnig erum við að selja handunnin kort og kerti.
Flóaskóli óskaði eftir að fá fræðslu um hvernig eigi að bregðast við þegar foreldri greinist með krabbamein. Starfsmaður hitti starfsfólkið í Flóaskóla. Krakkar sungu á skrifstofunni á öskudaginn og fengu límmiða í staðinn um skaðsemi reykinga.
Stuðningshópurinn Bandið hittist yfir veturinn fyrsta þriðjudagskvöld í mánuði. Fjögur fyrstu skiptin kom Ragnheiður Eiríksdóttir jógakennari og heimspekingur, fimmta skiptið kom kona og var með hláturjóga, sjötta skiptið var bara spjall, sjöunda skiptið kom Bryndís Ólafsdóttir og talaði um sogæðanudd og á áttunda og síðasti fundi ársins las Þuríður Fjóla Pálmadóttir jólasögu.
Hvíldardvöl að Sólheimum var síðustu helgina í janúar og var verið í húsnæði Bergmáls (frábært hús). Farið var síðdegis á föstudegi og komið heim eftir hádegi á sunnudegi. Lukka hjá Happ.is og Krafti kom á laugardagsmorgun og var með fræðslu um mataræði og sá um hádegismatinn, síðan var farið í skoðanferð að Espiflöt í Biskupstungum.
Selfosskirkja og Kotstrandarkirkja voru lýstar upp bleikar í október.
Formannafundur Krabbameinsfélags Íslands var haldinn í Hveragerði á Heilsustofnun Náttúrulækningarfélgs Íslands og borðaður þar hádegismatur og Heilsustofnunin skoðuð og boðið í sund.
Rannveig Árnadóttir.