Suðurnes

Krabbameinsfélag Suðurnesja 

Stofnað: 15. nóvember 1953. 
Félagsmenn: 707.

Stuðningshópur: Sunnan fimm, Suðurnesjum. Fundir annan miðvikudag í hverjum mánuði kl. 20. Upplýsingar gefur Anna María Einarsdóttir sími 421 6363.

 

 

Stjórn kosin á aðalfundi 29. apríl 2010:

Formaður: Guðmundur Björnsson, Óðinsvöllum 14, 230 Reykjanesbæ  gudmbj@internet.is
Ritari: Jónína Ágústsdóttir, Borgarvegi 27, 230 Reykjanesbæ    
Gjaldkeri: Jón Axelsson, Nónvörðu 11, 230 Reykjanesbæ 895 2162 jon@skolamatur.is
Meðstjórnandi: Grétar Grétarsson, Heiðarbóli 39, 230 Reykjanesbæ 893 7919  gretar@spkef.is
Meðstjórnandi: Sigurður Þór Sigurðarson, Baugholti 11, 230 Reykjanesbæ  sigurdur@hss.is

Minningarkort félagsins fást í Lyfju og Lyf og heilsu í Keflavík. Einnig fást þau á Pósthúsinu í Keflavík, Garði og Grindavík.

Starfsemi 2010-2011

Skrifstofa.

Starfsemi skrifstofunnar var með hefðbundnu sniði. Þar eru í boði viðtöl og fræðsla til þeirra sem óska, ásamt ýmsu útgefnu efni er lýtur að krabbameinssjúklingum og aðstandendum. Starfsmaður Krabbameinsfélags Suðurnesja hvetur Suðurnesjafólk til að nýta sér þá fræðslu og fyrirlestra sem eru í boði hjá Ráðgjafarþjónustunni í Skógarhlíð. Sameinast var um að mæta þangað og hlusta á Ásdísi Ólsen fjalla um gjörhygli. Einnig sótti starfsmaður fyrirlestur Sollu grænu sem haldinn var á vegum Samhjálpar kvenna. Einstaklingar héðan hafa mætt á námskeið í hugrænni atferlismeðferð og ekkjur eru hvattar til að sækja mánaðarlega stuðningsfundi. Stjórn og fulltrúar félagsins ásamt starfsmanni sóttu aðalfund Krabbameinsfélags Íslands og var ánægjulegt sem fyrr að vera þáttakandi í slíkum fundarhöldum hjá okkar öfluga móðurfélagi. Margt athyglivert kom fram á fundinum sem einnig er mikilvægur vettvangur fyrir aðildarfélögin til að koma sínum áherslum á framfæri. Starfsmaður hefur einnig sótt samráðsfundi í Skógarhlíð. Og stjórn félagsins, í samstarfi við starfsmann, vann sameiginlega að stefnumótun. Nú eru stjórnarfundir haldnir þriðja fimmtudag í hverjum mánuði. Árgjald félagsins var hækkað úr 1.500 kr. í 2.500 kr. vorið 2010 og hefur það skilað sér betur fjárhagslega þrátt fyrir færri greiðendur. Á liðnu sumri voru gerðar miklar lagfæringar á aðkomu og bílastæðum við húsið þar sem þjónustumiðstöðin okkar er staðsett. Framundan er að auðkenna aðstöðuna okkar betur með því að setja upp nýtt skilti á húsið en leyfi til þess liggja þegar fyrir.

Fjárstyrkir.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fékk greiddan styrk sem hefur verið nýttur til líknarherbergis. Einnig hefur félagið veitt styrki til fólks sem búsett er á Suðurnesjum og hefur þurft að dvelja á Rauðakrosshótelinu meðan á meðferð stendur. Tvær Suðurnesjakonur sem í september sóttu norrænt þing stuðningshópa um brjóstakrabbamein í Kaupmannahöfn á vegum Samhjálpar kvenna voru styrktar til þátttöku.

Minningakort félagsins

Minningarkort félagsins seljast ágætlega en þau fást í Lyfju, Lyf og heilsu og hjá Íslandspósti í Keflavík og Garði. Varaglossar, pennar og skrúfblýantar voru seldir með aðstoð 7. bekkinga í Grunnskóla Njarðvíkur og Sandgerðis ásamt nemendum Akurskóla.

Samfélag í nýjan búning

Samfélag í nýjan búning er yfirskrift nýrrar stefnu sem Landsbankinn hefur sett sér um stuðning bankans við íþróttafélög. Landsbankinn styrkir íþróttafélög um land allt og markmiðið er að tengja saman stuðning bankans við mannúðarmál. Bankinn afsalar sér öllum merkingum á búningum samstarfsfélaga og íþróttafélögin sjálf velja gott málefni til að setja á búninga sína. ÍBK, körfuknattleiksdeild Keflavíkur, valdi Krabbameinsfélag Suðurnesja sem styrktarmálefni. Samhliða var stofnaður áheitasjóður fyrir félagið. Haldið var teiti af þessu tilefni í Laugardalshöll þar sem starfsmaður mætti fyrir hönd félagsins og veitti viðtöku ávísun að upphæð 500.000 kr.

Anna María Einarsdóttir og Guðmundur Björnsson.

 

15.08 2011 - Mánudagur

Gaf minningargjöf um föður sinn

Krabbameinsfélag Suðurnesja hefur veitt viðtöku peningagjöf að upphæð 300.000. Þóra Kristín Hjaltadóttir gaf fyrrgreinda upphæð í minningu föður síns, Hjalta Heimis Péturssonar, sem lést úr krabbameini langt fyrir aldur fram árið 2009.
29.04 2010 - Fimmtudagur

Aðalfundur Krabbameinsfélags Suðurnesja

Aðalfundur Krabbameinsfélags Suðurnesja verður haldinn fimmtudaginn 29. apríl 2010 á Flughóteli, Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ, og hefst kl. 20.

1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Hinrik Greipssun flytur erindi um innri geislun við krabbameini í blöðruhálskirtli.

 








Skipta um leturstærð


Leit