Evrópuvika gegn leghálskrabbameini dagana 24 .– 30. janúar:

Vísdómsperlur um land allt

  • Vísdómsperlur seldar til styrktar árveknisáteki gegn leghálskrabbameini25.000 konur deyja úr leghálskrabbameini árlega í Evrópu  
    Ungar konur eru í áhættuhópi en mæta síður í skoðun 
  • Í Evrópu deyja 25.000 konur á ári hverju úr leghálskrabbameini þrátt fyrir að auðvelt sé að koma í veg fyrir slík krabbamein með reglubundinni skoðun eða bólusetningu. Árleg árveknisvika,
  • Evrópuvika gegn leghálskrabbameini, verður haldin 24.-30. janúar og af því tilefni verða seldar Vísdómsperlur í verslunum Lyfju og Lyf og heilsu um land allt. Ágóðinn rennur til styrktar leghálskrabbameinsleit Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins .

Átakinu er ætlað að auka árvekni fyrir leghálskrabbameini, hversu auðvelt sé að koma í veg fyrir það með reglubundnum skoðunum og til að hvetja konur til að mæta í slíkar skoðanir. Þá er Evrópuvikunni einnig ætlað að þrýsta á stjórnvöld í löndum þar sem ekki er boðað til reglulegrar skoðunar.

„Íslendingar eru meðal fremstu þjóða þegar kemur að forvörnum á þessu sviði en skipuleg leghálskrabbameinsleit Krabbameinsfélagsins hófst árið 1964. Hún hefur leitt til þess að mun færri konur fá þennan sjúkdóm en áður eða deyja úr honum,“ segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands og bendir á að í kjölfar skipulegrar leitar hafi tíðni leghálskrabbameins lækkað um 68% og dánartíðni um 87%.

Ungar konur í aukinni áhættu
„Það er áhyggjuefni að þeim konum sem nýta sér þessa auðveldu en árangursríku heilsuvernd fer fækkandi, sérstaklega hjá yngsta aldurshópnum. Það mæta einungis um 58% kvenna á aldrinum 20-24 ára í skoðun þrátt fyrir að fleiri ungar konur greinist nú með leghálskrabbamein en áður,“ segir Guðrún og bætir við að þá aukningu megi reka til breyttrar kynlífshegðunar. „HPV veiran er frumorsök leghálskrabbameins en hún smitast við kynmök. Veiran er mjög algeng meðal ungra kvenna og eru allt að 45-50% kvenna innan við 25 ára með hana. Í flestum tilfellum ræður líkaminn sjálfur niðurlögum veirunnar en í sumum tilfellum veldur hún frumubreytingum sem geta þróast í leghálskrabbamein og koma þá oft aðrir þættir við sögu, til að mynda reykingar. Eftir því sem konur eldast finnast færri með veiruna en einungis um 5-10% 45 ára kvenna greinast með hana. Þess vegna skiptir það sérstaklega miklu máli fyrir ungar konur að mæta í leghálsskoðun.“ 

Einföld og óþægindalítil rannsókn
Leghálsstrok er einföld og óþægindalítil rannsókn sem tekur stutta stund. Skoðun á frumum sem fást með strokinu sýnir hvort þar er að finna forstigsbreytingar eða leghálskrabbamein á frumstigi. Meðferð á þessum fyrstu stigum er einföld og árangursrík og veldur konunni litlum vandkvæðum. „Það er því ekkert að óttast við að mæta í leghálsskoðun, þvert á móti er hér um að ræða eina bestu forvörnina gegn krabbameini. Því minnum við allar konur á Íslandi á mikilvægi reglubundinnar skoðunar og hvetjum þær til að panta sér tíma hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins næst þegar þær eru boðaðar í skoðun,“ segir Guðrún Agnarsdóttir.



Nánari upplýsingar veita
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, sími 896 8587
Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri hjá Krabbameinsfélagi Íslands, sími 662 4156






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit