Dregið verður 24. desember í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins

Happdrætti Krabbameinsfélagsins hefur allt frá árinu 1955 verið ein helsta fjáröflunarleið krabbameins¬samtakanna hér á landi og stuðlað mjög að uppbyggingu þeirra og þróun. Einn mikilvægasti þáttur starfseminnar, fræðsla um krabbamein og krabbameinsvarnir, byggist að langmestu leyti á happdrættisfé.

Um 1.300 krabbamein eru að meðaltali greind á ári. Hjá konum er brjóstakrabbamein algengast og hjá körlum er það krabbamein í blöðruhálskirtli. Í öðru sæti er lungna¬krabbamein hjá báðum kynjum og ristilkrabbamein í því þriðja. Um 10.200 einstaklingar sem fengið hafa krabbamein eru nú á lífi. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins.

Í jólahappdrættinu fá konur heimsenda happdrættismiða. Vinningar eru 163 talsins að verðmæti um 22,7 milljónir króna. Aðalvinningurinn, að verðmæti 3.590.000 króna, er Chervolet Cruze LT, sjálfskiptur, frá Bílabúð Benna. Annar aðalvinningurinn er greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna. Tuttugu vinningar eru í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur. Einnig er 141 vinningur sem úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 24. desember.

Á bakhlið miðans eru konur minntar á mikilvægi þess að mæta reglulega í skipulega leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum og hvattar til þessa að panta tíma þegar þær fá boðunarbréf frá Leitarstöðinni.

Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Happdrættismiðarnir eru nú sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda fólki að greiða miðana í heimabanka eða netbanka og eiga jafnframt möguleika á glæsilegum vinningum. Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8. Þeir sem vilja borga miðana með greiðslukorti geta hringt í síma 540 1900, en þar eru einnig veittar nánari upplýsingar um happdrættið.

 







   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit