Bleiki bikarinn hófst árið 2005 og var um að ræða sérstök golfmót fyrir konur. Fyrst var keppt á tveimur stöðum en 2006 voru golfmótin orðin 27 sem gerði Bleika bikarinn að stærstu mótaröð í golfi á Íslandi. 

 

Árið 2009 gekk Vífilfell til liðs við Bleika bikarinn og breyttist þá nafn mótaraðarinnar í Bleika Toppbikarinn. Vífilfell sér um framkvæmd mótanna, leggur til verðlaun og kynningarefni.

 

Allur ágóði rennur til stuðnings leitarstarfi Krabbameinsfélagsins. Haldið er lokamót á hverju sumri og fær sá golfklúbbur sem á sigurvegara lokamótsins bikarinn afhentan til geymslu í ár. 

Vífilfell er sérstakur styrktaraðili Bleika Toppbikarsins. Hótel Hamar og Golfklúbbur Borgarness hafa einnig styrkt mótaröðina með myndarlegum stuðningi við lokamótið. 1919 Hótel Radisson SAS gaf veglega vinninga í lokamótinu.

Krabbameinsfélagið óskar vinningshöfum hjartanlega til hamingju og þakkar kærlega þeim fjölmörgu sem hafa lagt félaginu lið í þessu átaki.

Vinningshafar 2009 ásamt fyrrv. Íslandsmeisturum Helenu Árnadóttur og Ragnhildi Sigurðardóttur






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit