Hvað er krabbamein?

Það sem einkennir krabbamein er að frumur í tilteknum vef eða líffæri hætta að skynja sig sem hluta af heildinni, en fara þess í stað að skipta sér óháð þörfum líkamans.

Annað einkenni á krabbameinsfrumum er að þær geta rutt sér leið yfir í vefi sem liggja nálægt upprunastaðnum. Þannig geta þær komist inn í sogæðar og blóðæðar og borist til fjarlægra vefja og líffæra einstaklingsins og einnig farið að valda skaða þar.

Orsökina fyrir hinni afbrigðilegu hegðun krabbameinsfruma má rekja til truflana eða stökkbreytinga í erfðaefninu (DNA) sem er í stjórnstöð frumunnar, kjarnanum. Þekktir eru ýmsir þættir úr umhverfinu sem geta valdið þessum truflunum, þar á meðal eru tóbaksreykur, útfjólublá geislun og tilteknar örverur.









Skipta um leturstærð


Leit