Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélags Íslands veitir fólki sem greinist með krabbamein og aðstandendum þeirra upplýsingar og stuðning.

Ráðgjafarþjónustan er á fyrstu hæð í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 og er opin virka daga frá kl. 09:00-16:00. Tilgangur  þjónustunnar er að veita upplýsingar, ráðgjöf og hvatningu til sjálfshjálpar. Markmiðið er að mæta þörfum þeirra sem þjónustu leita.

Ráðgjafarþjónustan býður upp á sálfélagslegan stuðning, sálgæslu, djúpslökun og upplýsingar varðandi fjárhagsleg- og félagsleg úrræði. Reynt er að svara spurningum sem upp koma eftir greiningu krabbameins. Einnig er boðið upp á einstaklingsviðtöl.

Hjá Ráðgjafarþjónustunni eru hjúkrunarfræðingar og félagsráðgjafi í föstu starfi en einnig veitir þjónustan aðgang að sálfræðingi, næringarfræðingi og fleiri fagaðilum. Í Ráðgjafarþjónustunni er reglulega boðið upp á ýmis námskeið og fyrirlestrar sem hafa þann tilgang að styrkja einstaklinginn til sjálfshjálpar. Má þar nefna hugræna atferlismeðferð gegn vonleysi og kvíða, sjálfstyrkingarnámskeið, samveru fyrir ekkla og ekkjur, barnanámskeið og fleira.

Ráðgjafarþjónustan starfar í samstarfi við stuðningshópa Krabbameinsfélagsins og svæðafélög Krabbameinsfélagsins um land allt.

Í Ráðgjafarþjónustunni gefst tækifæri til að hitta aðra einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og/eða aðstandendur með svipaða reynslu. Stuðningshópar Krabbameinsfélagsins eru með fasta viðtalstíma fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein, aðstandendur og vini.

Ráðgjafarþjónustan er í heimilislegu húsnæði  með  sérhæfðu bókasafni, tölvu, prentara og þar er hressing í boði.  Allir eru hjartanlega velkomnir.

Þjónusta Ráðgjafarþjónustunnar er veitt án endurgjalds


Forvarnir

  1. Þekkjum einkennni krabbameins
  2. Lifum heilbrigðu lífi




   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit