Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins
24.09 2009 - Fimmtudagur

Þörf krabbameinssjúklinga fyrir félagslegan stuðning og endurhæfingu að lokinni meðferð á

Tilgangurinn með þessari rannsókn var að kanna hvaða stuðning krabbameinssjúklingar í krabbameinsmeðferð telja mikilvægan til að ná bata á nýjan leik. Spurningalisti var lagður fyrir 39 krabbameins- sjúklinga sem voru í lyfjameðferð á Lyflækningadeild krabbameina á Landspítala - háskólasjúkrahúsi við Hringbraut og þeir spurðir um þörf þeirra fyrir stuðning og endurhæfingu að lokinni krabbameinsmeðferð. Niðurstöður rannsóknarinnar voru á þá leið að 38% þátttakenda í rannsókninni telja sig þurfa á aðstoð að halda við að breyta einhverju í eigin lífi til að ná bata á ný. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að 59% þátttakenda telja þörf fyrir stuðning að lokinni krabbameinsmeðferð á LSH og að 69% þátttakenda telja þörf fyrir aðstoð varðandi upplýsingar um réttindi sjúklinga.

09.09 2009 - Miðvikudagur

Hvað er krabbamein

Það sem einkennir krabbamein er að frumur í tilteknum vef eða líffæri hætta að skynja sig sem hluta af heildinni, en fara þess í stað að skipta sér óháð þörfum líkamans. Annað einkenni á krabbameinsfrumum er að þær geta rutt sér leið yfir í vefi sem liggja nálægt upprunastaðnum. Þannig geta þær komist inn í sogæðar og blóðæðar og borist til fjarlægra vefja og líffæra einstaklingsins og einnig farið að valda skaða þar. Orsökina fyrir hinni afbrigðilegu hegðun krabbameinsfruma má rekja til truflana eða stökkbreytinga í erfðaefninu (DNA) sem er í stjórnstöð frumunnar, kjarnanum. Þekktir eru ýmsir þættir úr umhverfinu sem geta valdið þessum truflunum, þar á meðal eru tóbaksreykur, útfjólublá geislun og tilteknar örverur.



Forvarnir

  1. Þekkjum einkennni krabbameins
  2. Lifum heilbrigðu lífi




   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit