Reykleysisnámskeið

Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur um árabil haldið námskeið í reykbindindi. Þátttakendur á reykbindindisnámskeiðum Krabbameinsfélags Reykjavíkur hittast sex sinnum á fimm vikna tímabili í u.þ.b. klukkustund í senn.
Á fundunum er farið ítarlega í  undirbúning fyrir reykleysi. Ef reykingamaður er að hugsa um að hætta þá er það mjög mikilvægt að undirbúa sig vel áður en hætt er að reykja. Því betri sem undirbúningurinn er, þeim mun meiri árangurs má vænta.  Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um reyklaussvæði, tóbaksfíkn, fráhvarfseinkenni, lyf sem geta hjálpað, streitu, næringu, hreyfingu og hvað er jákvætt við að hætta að reykja.
Tveir fyrstu fundirnir eru undirbúningsfundir fyrir reykleysið.  Á fyrstu tveimur fundunum er fólk m.a. hvatt til að draga úr reykingum með því að fækka þeim svæðum sem reykt er á. Jafnframt er fólk að sætta sig við þá ákvörðun að hætta að reykja. Það hjálpar þátttakendum að vera búnir að ákveða reyklaus svæði á heimilum sínum sem nokkurs konar athvarf þegar reykingum er hætt.
Daginn sem þriðji fundurinn er haldinn þá hætta allir að reykja. Fólk hefur undirbúið sig í tvær vikur fyrir þennan dag en samt sem áður fylgir honum mikil spenna. Vegna þess að fyrstu dagarnir eru erfiðastir þá er fjórði fundurinn haldinn í sömu viku svo þátttakendur hittast því tvisvar sinnum með stuttu millibili fyrstu reyklausu dagana. Þannig fá þeir styrk og stuðning til að halda áfram í reykbindindi.
Síðustu tveir fundirnir eru stuðningsfundir til þess að styðja fólk í gegnum fráhvarfseinkenni og að festa reyklaust líf í sessi. Eftir að námskeiðinu líkur er eftirfylgni í ár. Leiðbeinandinn hringir þrisvar sinnum á árinu og fylgist með hvernig gengur. Skráning er hafin á námskeið sem byrjar þann 18. janúar 2010.

Skráning

Hægt er að skrá sig á námskeiðin í síma 540 1900 eða á reykleysi@krabb.is.  Leiðbeinandi er Ingibjörg K. Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur.  Námskeiðið kostar 13.600 kr. (sem jafngildir því að reykja pakka á dag í 16 daga, þegar pakkinn kostar 850 kr). Öryrkjar, eldri borgarar, atvinnulausir og hjón fá 10% afslátt.

Samhliða almennum námskeiðum félagsins er boðið upp á sérstök námskeið fyrir starfsfólk fyrirtækja og félagasamtaka. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru námskeiðsgögn, viðtal við leiðbeinanda og eftirfylgni.

Vefsíður með leiðbeiningum fyrir þá sem vilja hætta að reykja




Næstu atburðir




   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit