Orlofsdvöl (hvíldardvöl) á Löngumýri í Skagafirði í er samstarfsverkefni Krabbameinsfélags Skagafjarðar, Dugs stuðningsfélags krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra í Skagafirði og kirkjunnar. Fyrst og fremst er hugmyndin að gefa fólki sem er á milli meðferða, hefur lokið meðferð eða fólki sem hefur lagt sig fram í starfi innan þessa málaflokks tækifæri til að safna kröftum og njóta samkenndar í góðu umhverfi með hæfilegri áreynslu, fræðslu og í návist maka eða aðstandenda. Lögð er áhersla á góðan mat, hreyfingu við hæfi, fræðsluerindi, helgistundir, kvöldvökur, en umfram allt jákvætt andrúmsloft og viðmót. Fjöldi gistirýma er 26 í 15 herbergjum. Reynt er að afla styrkja til að greiða niður dvölina en það hefur gengið illa að undanförnu og miðast því fimm daga dvöl eins og er við fullt verð 35.000 kr. (ferðir til og frá og skoðunarferðir eru ekki innifaldar). Orlofsdvölin er ætluð fólki af öllu landinu. Sumarið 2010 verður boðið upp á a.m.k. eitt 5 daga hvíldartímabil.
Fyrir krabbameinssjúklinga dagana: 26. - 31. júlí. Fyrir ekkjur og ekkla 5 daga tímabil: 8. – 13. ágúst.
Nánari upplýsingar fást hjá Maríu Reykdal, formanni Dugs, í síma 863 6039 og hjá Gunnari Rögnvaldssyni staðarhaldara á Löngumýri í síma 453 8116.