Leiga fyrir íbúðir Krabbameinsfélagsins, Rauðarárstíg 33, Reykjavík er 1.600 kr. á sólarhring. Sum verkalýðsfélög greiða fyrir dvöl félagsmanna sinna í íbúðunum. Einnig greiða flest krabbameinsfélög á landsbyggðinni fyrir fólk af sínu félagssvæði. Ef Landspítalinn sendir reikning heim til sjúklings fyrir dvölina í íbúðunum getur viðkomandi farið með reikninginn til krabbameinsfélags í sinni heimabyggð sem aðstoðar við að greiða reikninginn.
Sótt er um afnot af íbúðunum á móttöku Geisladeildar Landspítalans sími 543 6800
Sjúkrahótelið, Rauðarárstíg 18, Rvík., sími 562 3330. Verð á sólarhring með fæði er niðurgreitt af TR og kostar kr. 1.200 fyrir sjúkling og 4.000 kr. fyrir aðstandandann. Erlendir ríkisborgarar greiða meira fyrir sólarhringinn. Flest herbergin eru tveggja manna og þarf beiðni frá lækni. Sum verkalýðsfélög greiða fyrir dvöl sinna félagsmanna á sjúkrahótelinu og einnig hafa sum krabbameinsfélög á landsbyggðinni greitt fyrir fólk á sínu félagssvæði.
gug/2011