14.10 2009

Heimilisaðstoð

Félagsleg þjónusta.

Samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitafélaga nr. 40/1991 skal sveitarfélag sjá um félagslega heimaþjónustu til handa þeim sem búa í heimahúsum og geta ekki séð hjálparlaust um heimilishald og persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda, barnsburðar eða fötlunar.

Með félagslegri heimaþjónustu skal stefnt að því að efla viðkomandi til sjálfsbjargar og gera honum kleift að búa sem lengst í heimahúsum við sem eðlilegastar aðstæður. Með félagslegri heimaþjónustu er átt við hvers konar aðstoð við heimilishald, persónulega umhirðu, félagslegan stuðning, gæslu og umönnun barna og unglinga. Áður en aðstoð er veitt skal sá aðili, sem fer með heimaþjónustu, meta þörf í hverju einstöku tilviki. Læknisvottorð skal liggja fyrir þegar um heilsufarsástæður er að ræða.

Heimaþjónusta.

Fólk sem býr í heimahúsum og getur ekki annast heimilishald eða persónulega umhirðu hjálparlaust getur fengið félagslega heimaþjónustu. Markmið þjónustunnar er að gera fólki kleift að búa á eigin heimili þrátt fyrir erfiðleika á borð við veikindi, álag, fötlun eða fjölskylduvanda. Starfsfólk í heimaþjónustu annast m.a. almenn heimilisstörf svo sem heimilisþrif og þvotta og leitast við að mæta persónulegum þörfum.  Félagslegur stuðningur, hvatning og samvera eru mikilvægir þættir í starfinu. Notandi greiði 530 kr. fyrir hverja vinnustund. Undanþegnir gjaldskyldu eru þeir notendur sem einungis hafa tekjur frá TR.









Skipta um leturstærð


Leit