Í reglugerð um styrki Tryggingarstofnunar ríkisins vegna hjálpartækja nr. 460/2003 með breytingum nr. 62 frá 17. janúar 2006 er kveðið á um styrki vegna kaupa á ýmsum hjálpartækjum og gervihlutum vegna breyttrar líkamsímyndar ásamt hjálpartækjum við persónulega aðhlynningu og fatnað.
Styrkir til kaupa á hjálpartækjum vegna minnkaðrar færni vegna sjúkdóma.
Umsóknareyðublöð um styrki eru á heimasíðu TR.
Grunnvottorð læknis vegna krabbameins þarf að vera til staðar hjá TR. Skilyrði fyrir veitingu styrks til kaupa á hjálpartækjum er minnkuð færni og/eða sjúkdómur. Sbr. 33. grein laga nr. 117/1993.
Styrkir til kaupa á hárkollum, höfuðfötum, gerviaugnabrúnum, gerviaugnhárum
nema 77.000 kr. á ári (styrkurinn gildir ekki fyrir tattóveraðar augnabrúnir). Læknar á LSH senda grunnvottorð til TR um að viðkomandi einstaklingur sé í krabbameinsmeðferð og í framhaldi af því sendir Hjálpatækjamiðstöð TR, Smiðjuvegi 28, Kópavogi viðkomandi krabbameinssjúklingi bréf um að hann geti keypt þessar vörur.
Söluaðila eru m.a.: Hárkollugerð Kolfinnu, sími 511 5222, Skólavörðustíg 8, Reykjavík, Hár og heilsa, sími 511 2100, Bergstaðarstræti 13, Reykjavík og Stoð, Trönuhrauni 8, Hafnarfirði. Krabbameinssjúklingum er heimilt að versla þessar vörur annarsstaðar en hjá ofangreindum aðilum og geta þá fengið endurgreitt hjá Hjálpatækjamiðstöð TR eða látið senda reikninginn þangað.
Styrkir til kaupa á gervibrjósti og brjóstahöldum og sundfatnaðar
nema 77.000 kr. á ári (154.000 fyrsta árið). Umsóknareyðublað er á vefsíðu TR og þarf læknir að staðfesta umsóknina á hverju ári sem varan er keypt. Styrkurinn er 77.000 kr. á ári (miðað við eitt brjóst) og þarf kaupandinn að greiða það sem umfram er. Þegar umsóknin hefur verið samþykkt þarf að koma henni til Hjálpartækjamiðstöðvar TR þar sem viðkomandi fær bréf í hendur sem sýnt er þegar vörurnar eru afgreiddar. Bréfið gildir í 12 mánuði.
Endurnýja þarf innkaupaheimildina árlega og er það gert með því að læknir sendir inn nýja umsókn en þá þarf læknisvottorð ekki að fylgja. Söluaðilar eru m.a. Eirberg, Stórhöfða 25, Rvík, Guðrún Kristjánsdóttir sími 699 2355 eftir klukkan 14:30, Lífstykkjabúðin, Laugavegi 82, Rvík, Sjúkravörur, Suðurlandsbraut 52, Rvík, Stoð, Trönuhrauni 8, Hafnarfirði og fl.
Hjálpartæki og stómavörur
vegna þvag- og hægðavanda eru að mestu leyti greidd af TR. Þrýstingsbuxur vegna stóma eru greiddar sem nemur 70% að hámarki 16.780 kr. fyrir stykkið, tvö stykki á ári. Hjálpartækjaskírteini er gefið út fyrir samþykktar vörur og gildir það eftir atvikum í eitt, fimm eða tíu ár. Við kaup þarf að framvísa skírteini sem nær til viðkomandi vara. Einstök kaup notenda skulu miðast við mest þriggja mánaða birgðir.
Hjálpartæki og nauðsynlegar vörur vegna brottnáms raddbanda eru einnig greiddar af TR.
Styrkir til kaupa á næringarefnum
og sérfæðis eru afgreiddir samkvæmt beiðni frá lækni.