Afsláttarskírteini
Þeir sem eiga rétt á að fá aflsáttarskírteini hjá TR eru:
Einstaklingar 18-66 ára sem hafa greitt kr. 28.000 fyrir læknisþjónustu á almanaksárinu.
Aldraðir 70 ára og eldri, þeir 60 til og með 69 ára sem eru með óskertan ellilífeyri, öryrkjar og aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og hafa greitt kr. 7.000 á sama almanaksári vegna læknisþjónustu.
Öll börn undir 18 ára aldri í sömu fjölskyldu þegar greiddar hafa verið kr. 8.400 á sama almanaksári. Þeir sem eru búnir að greiða meira en sem nemur hámarksgreiðslunni (28.000 kr.) eiga rétt á afslætti sem nemur 2/3 af kostnaði vegna læknisþjónustu.
Afsláttarskírteinið veitir afslátt af komugjöldum á heilsugæslustöð, til heimilislæknis, vitjun læknis, komu til sérfræðings, komu á göngudeild, slysadeild, bráðamóttöku og til rannsókna á viðkomandi einstaklingi.
gug/2011