Ýmsir líta á óhefðbundnar lækningar sem viðbót við hefðbundna læknismeðferð. Samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu eru þær aðferðir eða meðferðir sem notaðar eru í “annars konar meðferð” (alternative therapy) og “samfallandi meðferð” (complementary therapy) þær sömu en að munurinn sé sá að alternative sé notað í stað hefðbundinnar meðferðar en complementary sé notað með hefðbundinni læknismeðferð innan heilbrigðisgeirans og þá af starfsmönnum á sjúkrastofnunum.
Ekki er talið ráðlegt að nota óhefðbundnar lækningar nema í samráði við lækni á meðan á hefðbundinni krabbameinsmeðferð stendur því í sumum lækningajurtum eru efni sem geta unnið gegn virkni krabbameinslyfja, haft áhrif á hefðbundna lyfjameðferð og valdið skaðsemi í geislameðferð. Ef fólk vill nýta sér óhefðbundin lækningarúrræði er gott að ákveða fyrirfram hversu miklum tíma og peningum það vill verja í slíka meðferð.
Danskar rannsóknir hafa sýnt að sumar tegundir óhefðbundna lækninga geta haft góð áhrif á fylgikvilla vegna krabbameinsmeðferðar og felast góðu áhrifin meðal annars í betri svefni og meiri lífskrafti. Það styrki einnig sjúklinginn að hafa gert eitthvað sjálfur. Rannsóknarniðurstöðurnar sýna einnig aukið andlegt jafnvægi og minni hræðslu við slæmar afleiðingar sjúkdómsins (www.cancer.dk/resources/patalternativ2006samlet.pdf).
Upplýsingar um óhefðbundnar lækningar má m.a. finna í lögum um óhefðbundnar lækningar, hjá bandalagi íslenskra græðara og víðar: Bandalag íslenskra græðara, eru regnhlífasamtök fagfélaga heildrænna meðferðaraðila á Íslandi. www.big.is Lögum um græðara nr. 34/2005 er ætlað að stuðla að gæðum heilsutengdrar þjónustu græðara og öryggi þeirra sem leita eftir slíkri þjónustu eða nýta sér hana.
Sjá má umfjöllun um óhefðbundnar lækningar í bókinni “Lífs-Kraftur” sem Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur gaf út og fæst gefins hjá Krabbameinsfélaginu og á krabbameinsdeildum LSH, www.kraftur.org
Íslenskar lækningarjurtir, sjá umfjöllun á heimasíðu www.sagamedica.is
Einnig sýna niðurstöður danskrar rannsóknar að nálastungumeðferð og C vítamín hafa áhrif í þá átt að minnka verki vegna krabbameinsmeðferðar (www.cancer.dk).
Á vefsíðunni www.heilsubankinn.is má finna upplýsingar um ýmissar tegundir óhefðbundinna meðferða ásamt upplýsingum um næringu og heilsurækt.