Í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins getur fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þess fengið upplýsingar, stuðning og ráðgjöf til að takast á við aðstæður sínar. Þar má einnig hitta fólk úr jafningjafræðslu stuðningshópa Krabbameinsfélagsins sem veitir fólki upplýsingar, stuðning og ráðgjöf.
Hjá Fjölskyldumiðstöðinni Háaleitisbraut 13, er boðið upp á fjölskyldumeðferð sem er fólki að kostnaðarlausu, vefsíða www.barnivanda.is. Þjónustan er hugsuð sem almenn og fyrirbyggjandi þjónusta fyrir fjölskyldur og tekur Erla Þórðardóttir félagsráðgjafi við viðtalspöntunum í síma 511 1599.
Hjá Fjölskylduþjónusta kirkjunnar, Klapparstíg 25, sími 562 3600 er starfandi sálfræðingur og þrír félagsráðgjafar sem bjóða upp á hjóna og fjölskyldumeðferð. Símatími á morgnana kl. 8:30 – 9:00 viðtalið kostar 4.000 krónur.
Á heimasíðu Persona.is má finna kvíða- og þunglyndispróf www.persona.is sem getur hjálpað fólki að finna út hvort það hafi þörf fyrir aðstoð vegna kvíða eða þunglyndis.
Sjúkrasjóðir flestra stéttarfélaga greiða fyrir ákveðinn fjölda viðtala hjá sálfræðingi.
Annað.
Hugsanlega er hægt er að sækja um styrk til Velferðarsviðs Reykjavíkur eða félagsþjónustu sveitafélaga um að fá greidd 10 viðtöl hjá sálfræðingi.
Hugsanlega er hægt er að sækja um styrk til Velferðarsviðs Reykjavíkur eða félagsþjónustu sveitafélaga um að fá greidd 10 viðtöl hjá sálfræðingi.
Heimsóknarþjónusta á vegum kirkjunnar (heimsóknarvinur), www.kirkjan.is
Heimsóknarþjónusta á vegum Rauða krossins, www.rki.is
Prestar og djáknar, www.kirkjan.is
Fyrirbænahópar: í Grafarvogskirkju á sunnudagskvöldum kl. 20. Í kapellu í Hallgrímskirkju á þriðjudögum kl. 10:30-11:00, www.kirkjan.is
Höndin býður upp á heimsóknir til eldra fólks og þeirra sem eru einmana.
Upplýsingar gefur Helgu Hallbjörnsdóttur, sími: 5676034, virka daga, www.hondin.is