Upplýsingar um krabbameinslyf og önnur lyf má finna á vefslóðinni www.doktor.is/lyf/lyfjabokin.asp Sum lyf sem notuð eru í krabbameinsmeðferð geta haft aukaverkanir og eru aukaverkanir lyfja tilgreindar á fylgiblöðum með lyfjum.
Tennur: Sum krabbameinslyf eru talin fara illa með tennur og getur krabbameinslæknir viðkomandi sjúklings hugsanlega sótt um að TR greiði fyrir tannskemmdir sem rekja má til krabbameinsmeðferðar. Auk þess taka sjúkratryggingar TR þátt í kostnaði vegna almennra tannlækninga elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.
Heyrn: Í sumum tilvikum er talið að heyrn fólks skerðist við krabbameinsmeðferð. Hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Háaleitisbraut 1, Reykjavík, s. 5813855 er heyrn mæld og ef mæling sýnir að heyrn er skert að ákveðnu marki á fólk rétt á heyrnartæki eða niðurgreiðslu á dýrara heyrnartæki sem þar er keypt. Niðurgreiðsla nemur allt að 30.800 kr. á heyrnatæki eða 61.600 kr. fyrir bæði eyru. Vefsíða www.hti.is
Sjúklingar í krabbameinsmeðferð á Landspítalanum fá afhenta dagbók sem hefur að geyma hagnýtar upplýsingar um aukaverkanir lyfja. Ráðlegt er að halda dagbók varðandi líðan og skrá upplýsingar um atburði í sjúkrasögunni, t.d. hvenær viðkomandi greindist, hvað greindist, hvaða aðgerðir eru gerðar, hvernig líður og hvaða leiðir til lækninga. Þannig fær fólk betri stjórn á aðstæðum og getur betur lagt mat á ákvarðanir sem taka þarf í sjúkdómsferlinu.
Sigurður Böðvarsson krabbameinslæknir fjallar um algeng vandamál sem fylgja krabbameinsmeðferð svo sem verki, þreytu og þyngdartap ásamt auka og hliðarverkunum krabbameinslyfja á vefsíðunni www.krabbamein.is
Góð umfjöllun um hugsanlegar hliðarverkanir vegna lyfja- og geislameðferðar krabbameinssjúklinga og bjargráð til að draga úr þeim er að finna í bókinni “Lífs-Kraftur” sem gefin er út af stuðningshópnum Krafti. Bókin fæst gefins á krabbameinsdeildum LSH og hjá Krabbameinsfélagi Íslands og er einnig á heimasíðu Krafts www.kraftur.org
Tilkynna þarf Lyfjastofnun um aukaverkanir lyfja, náttúrulyfja og náttúruefnis. Eyðublöð er að finna á heimasíðu Lyfjastofnunar www.lyfjastofnun.is