26.09 2009

Börn sem aðstandendur

Hvað á að segja barni þegar foreldri þess greinist með krabbamein og hvernig á að ræða við börnin um slíka hluti?

 
Börn þurfa að finna að öryggi þeirra sé ekki ógnað og að framtíð þeirra sé tryggð þrátt fyrir veikindi foreldris og koma þarf í veg fyrir að barnið verði óttaslegið. Best er að líf barnsins raskist sem minnst og að það mæti í leikskóla og skóla eins og það var vant að gera fyrir tilkomu veikindanna.

Gott er að ráðfæra sig við sálfræðing eða aðra fagaðila um það hvernig best sé að haga upplýsingagjöf við börnin ef foreldri þess greinist með krabbamein. Í flestum skólum eru starfandi skólasálfræðingar sem sjálfsagt er að leita til.   

Leikskólar. Börn krabbameinssjúklinga eru í forgangi hvað varðar pláss í leikskólum.

Leiðbeiningar um hvernig gott er að ræða við börn krabbameinssjúklinga er að finna í bæklingi sem Krabbameinsfélagið hefur gefið út. Bæklingurinn nefnist: "Mamma, pabbi, hvað er að?"











Skipta um leturstærð


Leit