Tryggingarstofnun ríkisins greiðir ferðakostnað vegna sjúkdómsmeðferðar ef viðkomandi þjónusta er ekki fyrir hendi í heimahéraði sjúklings.
Þá þarf læknisvottorð að vera til staðar hjá TR. Þeir sjúklingar sem eru í geisla- eða lyfjameðferð á Landspítalanum en gista í íbúðum Krabbameinsfélagsins eða á sjúkrahótelinu við Rauðarárstíg eiga kost á að fá greitt fyrir leigubíla milli dvalarstaðar og Landspítalans en þá þarf læknir að senda beiðni um greiðslu til TR.
Ráðlegt er að safna greiðslukvittunum saman og koma þeim til umboðs TR í heimabyggð sjúklingsins þar sem ferðakostnaðurinn fæst endurgreiddur.
Í sjúkdómsmeðferð sem sótt er fjarri heimili viðkomandi í mánuð eða meira greiðist fyrir ferð heim aðra hverja helgi. Fólk yngra en 18 ára fær greitt fyrir ferð heim um hverja helgi.
Læknir í heimahéraði getur sótt um að greitt sé einnig fyrir fylgdarmann sjúklings. Að jafnaði skal sækja um greiðsluþátttöku til TR áður en ferð er farin nema um bráðatilvik sé að ræða.
Endurgreiðsla ferðakostnaðar.
Við endurgreiðslu skal framvísa farseðlum ef ferð er farin með almenningsfarartækjum. Með umsókn sinni um endurgreiðslu skal sjúklingur að auki leggja fram staðfestingu á hverri komu frá þeim sem meðferðina veitir auk staðfestingar frá sjúkrahúsi um sjúkrahúslegu eftir því sem við á. Þegar um er að ræða nauðsynlegar, ítrekaðar ferðir sjúklings vegna meðferðar sbr. §3.04.03, endurgreiðir Tryggingastofnun 3/4 hluta ferðakostnaðar með leigubifreið milli aðseturs sjúklings og meðferðarstaðar samkvæmt framlögðum kvittunum, þótt vegalengd sé skemmri en 20 km. Enda sé sjúklingur ekki fær um að ferðast með áætlunarbifreið eða almenningsvagni. Ef eigin bifreið er notuð endurgreiðir Tryggingastofnun 2/3 hluta kostnaðar sem miðast við 26,20 kr. á ekinn kílómetra.