Meðan á krabbameðferð stendur 
30.11 2009 - Mánudagur

Húsnæði í boði fyrir fólk utan af landi á meðan á krabbameinsmeðferð stendur

 

Leiga fyrir íbúðir Krabbameinsfélagsins, Rauðarárstíg 33, Reykjavík er 1.500 kr. á sólarhring. Sum verkalýðsfélög greiða fyrir dvöl félagsmanna sinna í íbúðunum. Einnig greiða flest krabbameinsfélög á landsbyggðinni fyrir fólk af sínu félagssvæði. Ef Landspítalinn sendir reikning heim til sjúklings fyrir dvölina í íbúðunum getur viðkomandi farið með reikninginn til krabbameinsfélags í sinni heimabyggð sem aðstoðar við að greiða reikninginn.

Sótt er um afnot af íbúðunum á móttöku Geisladeildar Landspítalans sími 543 6800



Sjúkrahótelið, Rauðarárstíg 18, Rvík., sími 562 3330. Verð á sólarhring með fæði er niðurgreitt af TR og kostar kr. 1.200 fyrir sjúkling og 3.700 kr. fyrir aðstandandann. Erlendir ríkisborgarar greiða 5.000 kr. fyrir sólarhringinn. Flest herbergin eru tveggja manna og þarf beiðni frá lækni. Sum verkalýðsfélög greiða fyrir dvöl sinna félagsmanna á sjúkrahótelinu og einnig hafa sum krabbameinsfélög á landsbyggðinni greitt fyrir fólk á sínu félagssvæði.

14.10 2009 - Miðvikudagur

Afsláttarskírteini.

Þeir sem eiga rétt á að fá aflsáttarskírteini hjá TR eru:

Allir sem hafa greitt kr. 27.000 fyrir læknisþjónustu á almanaksárinu. 

Aldraðir 67 - 69 ára og sjómenn 60 - 69 ára sem njóta óskerts ellilífeyris og hafa greitt kr. 21.500 á almanaksárinu.

Aldraðir 70 ára og eldri, öryrkjar og aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og hafa greitt kr. 6.500 á sama almanaksári vegna læknisþjónustu á almanaksárinu.

Börn undir 18 ára aldri með sama fjölskyldunúmer samkvæmt skilgreiningu Þjóðskrár skulu teljast einn einstaklingur. Þegar greiddar hafa verið kr. 8.100 á sama almanaksári í slíkum tilvikum hefur skapast réttur á afsláttarskírteini.  

 

Framvísa þarf frumriti greiðslukvittunar hjá TR. Þeir sem sækja um afsláttarkort eftir að vera búnir að greiða meira en sem nemur hámarksgreiðslunni geta fengið 2/3 hluta af mismuninum endurgreiddan.   Afsláttarskírteinið veitir afslátt af komugjöldum á heilsugæslustöð, til heimilislæknis, vitjun læknis, komu til sérfræðings, komu á göngudeild, slysadeild, bráðamóttöku og til rannsókna á viðkomandi einstaklingi.

 

 






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit