Inngangur
Hvaða afl er það sem fær fólk til að hittast vikulega á bænafundum og biðja fyrir fólki sem það hefur aldrei séð og hvernig veit fólk að bænir hafa áhrif? Hér á eftir er fjallað um bænir og trú og sagt frá nokkrum rannsóknum sem gerðar hafa verið á áhrifum bæna á vatn, plöntur og dýr en slíkar rannsóknir hafa þótt gagnlegar til að mæla á sem hlutlausastan hátt áhrifamátt bænarinnar. Fjallað er um hvaða áhrif bænaiðkun hefur á starfsemi heilans og hvernig bænaiðkun vinnur gegn streitu, kvíða og þunglyndi. Einnig er sagt er frá nokkrum rannsóknum sem birtar hafa verið á tengslum milli bæna og heilbrigðis fólks almennt en þessar rannsóknir eiga það sameiginlegt að hafa verið birtar í ritrýndum bókum og fagtímaritum.
Í síðari hluta greinarinnar er greint frá íslenskri rannsókn á áhrifamætti bænarinnar þar sem þátttakendur í fjórtán bænahópum voru beðnir að meta heilsutengd lífsgæði sín. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvort tengsl séu milli bænaiðkunar og heilbrigðis þeirra sem biðja reglulega í íslensku þjóðfélagi. Í rannsókninni var einnig spurt um starfsemi bænahópanna og viðhorf og væntingar þátttakenda til bænarinnar.
Smellið hér til að lesa alla greinina "Áhrifamáttur bænarinnar".