18.10 2007

Geislameðferð brjóstakrabbameina

Geislameðferð er í mörgum tilfellum hluti af þeirri meðferð sem konur fá við nýgreint brjóstakrabbamein. Yfirleitt er meðferðunum raðað þannig upp að byrjað er á skurðaðgerð. Síðan eru krabbameinslyf gefin ef þörf er á því og í framhaldinu geislameðferð að gefnum ákveðnum forsendum. Að lokum eru konurnar settar á móthormónameðferð ef krabbameinið reynist vera hormónanæmt. Um það bil 1% af brjóstakrabbameinum greinast hjá karlmönnum og það sem hér er sett fram á jafnt við þá eins og konurnar.

Þær forsendur sem þurfa að vera fyrir hendi áður en hafin er geislameðferð tengist annars vegar umfangi skurðaðgerðarinnar og útbreiðslu sjúkdómsins. Þegar gerður er fleygskurður þar sem æxlið sjálft er fjarlægt og nánasta umhverfi þess en brjóstið að öðru leyti látið halda sér er í framhaldinu gefin geislameðferð á þann brjóstvef sem eftir er. Þá er gert ráð fyrir að geislameðferðin nái að eyða hugsanlegum krabbameinsfrumum sem gætu hafa orðið eftir við skurðaðgerðina. Það hefur sýnt sig að fleygskurður þar sem geislameðferð er gefin í framhaldi er jafngóð meðferð eins og ef allt brjóstið er fjarlægt. Stundum þarf að fjarlægja allt brjóstið og er þá talið nauðsynlegt að gefa geislameðferð í framhaldinu ef æxlið er mjög stórt eða ef margir eitlar úr holhöndinni reynast vera með krabbameinsfrumur. Þá er geislameðferð gefin á brjóstkassann þar sem brjóstið var og á eitlastöðvar í holhöndinni. Geislameðferð er því regla ef gerður er fleygskurður en í undantekningartilfellum er geislameðferð gefin ef brjóstið er fjarlægt. Oftast þurfa konurnar að koma í 25 skipti til að fá geislameðferð þar sem meðferðin er gefin alla virka daga þ.e. fimm sinnum í viku. Meðferðin tekur því 5 vikur.

Áður en geislameðferðin byrjar fer fram undirbúningur. Í honum felst m.a. sneiðmyndataka þar sem sneiðmyndir eru teknar af brjóstkassanum. Það er gert til að hægt sé að útbúa þrívíddarmynd af brjóstkassa konunnar í sérstöku tölvuundirbúningskerfi. Með þessu móti er það gert auðveldara að sjá hver afstaða brjósts og brjóstkassa er til legu lungna og hjarta. Hægt er að herma eftir geislameðferðinni í tölvukerfinu og því betur hægt að meta hvað mikið af geisluninni fer inn í nærliggjandi líffæri og þá hvernig best er að haga meðferðinni þannig að óæskileg geislun verði sem minnst. Leitast er við að sem minnst fari í nærliggjandi lunga og helst ekkert í hjarta. Þessi tækni hefur gert það mögulegt að draga mjög úr aukaverkunum í þessum líffærum. Það hefur einnig sýnt sig að geislameðferð dregur ekki eingöngu úr líkunum á endurkomu brjóstakrabbameins heldur hefur einnig aukið lífslíkur kvennanna. Aftur á móti veldur geislameðferð aukaverkunum meðan á meðferðinni stendur og í einhvern tíma þar á eftir. Aðallega er um að ræða húðbruna sem stundum er mjög vægur en einstaka sinnum kemur fram húðflögnun eins og um sólbruna er að ræða. Sýkingar eru sjaldgæfar. Nokkuð algeng er þreyta og orkuleysi sem getur staðið yfir í nokkurn tíma eftir lok meðferðarinnar.

Þegar á heildina er litið er ljóst að geislameðferð er mikilvægur hluti af meðferð við nýgreindu brjóstakrabbameini að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og að aukaverkanir eru oftast vel þolanlegar. Það verður samt alltaf að hafa í huga að ekki eru tveir einstaklingar eins. Því er vel fylgst með konunum í geislameðferðinni bæði af hjúkrunarfræðingum og geislafræðingum deildarinnar ásamt læknum. Að meðferð og undirbúningi geislameðferðarinnar koma einnig starfsfólk geislaeðlisfræðideildar, það er geislaeðlisfræðingar, hjúkrunarfræðingar og geislafræðingar. Það er eingöngu hægt að undirbúa og gefa geislameðferð á einum stað á landinu það er á Landspítalanum við Hringbraut í svokallaðri K-byggingu.

Geislameðferð er einnig gefin ef um ólæknandi brjóstakrabbamein er að ræða. Eðli meðferðarinnar breytist frá því að vera læknandi yfir í að vera meðferð þar sem markmiðið er að draga úr einkennum. Ekki þarf að gefa eins mörg skipti eins og við læknandi meðferð til að draga úr einkennum. Stundum nægir að gefa eitt skipti geislameðferð og allt upp í tíu skipti. Dæmi um slíka meðferð er geislameðferð á bein vegna verkja frá beinameinvörpum. Þar er tilgangurinn að draga úr verkjunum þannig að hægt sé að takmarka verkjalyfjameðferð.

Geislameðferð hefur því fjölbreyttu hlutverki að gegna við meðferð brjóstakrabbameina. Undanfarin ár hefur það færst í vöxt að tvinna saman mismunandi meðferðarleiðir ekki bara í brjóstakrabbameinum heldur einnig við mörg önnur krabbamein. Hlutverk geislameðferðar við meðhöndlun krabbameina heldur því áfram að vera mikilvægt og mikilvægi hennar jafnvel aukist með tækniframförum innan þessarar meðferðarleiðar.

Úr Fréttablaðinu, 18. október 2007.

Jakob Jóhannsson krabbameinslæknir.









Skipta um leturstærð


Leit