21.05 2010 - Föstudagur

Qi gong

Ingibjörg J. Friðbertsdóttir

Í meira en 5000 þúsund ár hafa Kínverjar notað qigong til heilsueflingar. Geta
hjúkrunarfræðingar nýtt þau verðmæti sem búa í aldagömlum aðferðum til að
bæta líðan og lífsgæði skjólstæðinga sinna?

smellið hér til að lesa greinina "Qi gong"

24.09 2009 - Fimmtudagur

Þörf krabbameinssjúklinga fyrir félagslegan stuðning og endurhæfingu að lokinni meðferð

Tilgangurinn með þessari rannsókn var að kanna hvaða stuðning krabbameinssjúklingar í krabbameinsmeðferð telja mikilvægan til að ná bata á nýjan leik. Spurningalisti var lagður fyrir 39 krabbameins- sjúklinga sem voru í lyfjameðferð á Lyflækningadeild krabbameina á Landspítala - háskólasjúkrahúsi við Hringbraut og þeir spurðir um þörf þeirra fyrir stuðning og endurhæfingu að lokinni krabbameinsmeðferð. Niðurstöður rannsóknarinnar voru á þá leið að 38% þátttakenda í rannsókninni telja sig þurfa á aðstoð að halda við að breyta einhverju í eigin lífi til að ná bata á ný. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að 59% þátttakenda telja þörf fyrir stuðning að lokinni krabbameinsmeðferð á LSH og að 69% þátttakenda telja þörf fyrir aðstoð varðandi upplýsingar um réttindi sjúklinga.






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit