Orlofsdvöl á Löngumýri í Skagafirði er samstarfsverkefni Krabbameinsfélags Skagafjarðar, Dugs stuðningsfélags krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra í Skagafirði og kirkjunnar. Fyrst og fremst er hugmyndin að gefa fólki sem er á milli meðferða, hefur lokið meðferð eða fólki sem hefur lagt sig fram í starfi innan þessa málaflokks tækifæri til að safna kröftum og njóta samkenndar í góðu umhverfi með hæfilegri áreynslu, fræðslu og í návist maka eða aðstandenda. Lögð er áhersla á góðan mat, hreyfingu við hæfi, fræðsluerindi, helgistundir, kvöldvökur, en umfram allt jákvætt andrúmsloft og viðmót. Fjöldi gistirýma er 26 í 15 herbergjum. Reynt er að afla styrkja til að greiða niður dvölina. Orlofsdvölin er ætluð fólki af öllu landinu. Í boði hafa verið þrjú 5 daga hvíldartímabil sem hafa verið í maí, júlí og ágúst. Nánari upplýsingar fást hjá Maríu Reykdal, formanni Dugs, í síma 863 6039 og hjá Gunnari Rögnvaldssyni staðarhaldara á Löngumýri í síma 453 8116.
Orlofsdvöl á Eiðum í umsjón Krabbameinsfélags Austfjarða og Austurlands hefur verið síðustu helgina í ágúst. Dvölin kostar kr. 2.500.- og er boðið upp á fræðslu og skemmtun. Upplýsingar fást hjá Önnu Heiðu í síma 474 1530 eða Álfheiði í síma 898 1530, netfang: kraus@simnet.is
Orlofsvikur á Sólheimum í Grímsnesi í júní. Einnig er boðið upp á orlofsdvöl í Bláa lóninu síðustu vikuna í janúar. Orlofsdvölin er í boði Bergmáls og skráning fer fram hjá Kolbrúnu Karlsdóttur í síma 587 5566. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.bergmalid.is
gug/2011