19.10 2009

Ráðgjöf á sviði starfsendurhæfingar

Atvinnuendurhæfing

Virk atvinnuendurhæfing sími 535 5700 (www.virk.is). Ef starfsgetu fólks er ógnað, t.d. vegna heilsubrests getur það leitað aðstoðar hjá ráðgjafa í sínum sjúkrasjóði. Ráðgjafinn aðstoðar fólk við að efla færni sína og vinnugetu. Ráðgjafinn metur starfshæfni, bæði út frá heilsufarslegum og félagslegum þáttum. Fólk fær aðstoð við að gera sína eigin áætlun um aukna virkni, heilsueflingu og starfsendurhæfingu. Ráðgjafinn fylgir áætluninni eftir, í samráði við viðkomandi. Ef fólk ert lengi frá vinnu vegna veikinda aðstoðar ráðgjafinn fólk við að vera í reglubundnu sambandi við vinnustaðinn. Og aðstoðar við gerð áætlunar um að snúa aftur til starfa. Einnig býðst aðstoð frá  sérfræðingum, svo sem sálfræðingum, iðjuþjálfum, sjúkraþjálfurum, læknum, félagsráðgjöfum og náms- og starfsráðgjöfum. Ráðgjafinn getur útvegað þá þjónustu sem fólk þarft helst á að halda. Þjónustan er að kostnaðarlausu og hún er miðuð út frá þörfum notenda þjónustunnar og skipulögð í góðri samvinnu við hann. Virk atvinnuendurhæfing aðstoðar fólk til að komast aftur til vinnu.

Önnur atvinnuendurhæfing:
Janus atvinnuendurhæfing, Vörðuskóla v/Egilsgötu, Reykjavík, www.janus.is
Hringsjá, starfsþjálfun fatlaðra, Hátúni 10d, www.hringsja.is
Hugarafl, Bolholti 4, sem er atvinnuendurhæfing í geðheilbrigðisgeiranum á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, www.hugarafl.is 

gug/2011









Skipta um leturstærð


Leit