30.09 2009

Réttur til atvinnuleysisbóta.

Launamenn og sjálfstætt starfandi einstaklingar á aldrinum 16-70 ára eiga rétt á atvinnuleysisbótum að því tilskildu að þeir séu: atvinnulausir, virkir í atvinnuleit og vinnufærir og reiðubúnir til að ráða sig til allra almennra starfa. Sótt er um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumiðlun, Engjateigi 11, Reykjavík, sími 515 4850.
Einstaklingur sem skráir sig atvinnulausan á rétt á grunnatvinnuleysisbótum að fjárhæð 149.523 kr. á mánuði. Þeir sem verða atvinnulausir geta sótt um tekjutengdar atvinnuleysisbætur fyrstu þrjá mánuðina í atvinnuleysi sem munu nema 70% af heildarlaunum á ákveðnu viðmiðunartímabili, en þó aldrei hærri en 242.636 kr. á mánuði. Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar getur átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár.

Óvinnufærni vegna sjúkdóms eða slyss

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 og verður óvinnufær vegna sjúkdóms eða slyss getur geymt áunna atvinnuleysistryggingu þann tíma sem hann er óvinnufær. Launamaður sem sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar telst tryggður hlutfallslega í samræmi við lengd starfstíma síðustu 12 mánuði í vinnu. Sæki hinn tryggði ekki um atvinnuleysisbætur innan sex mánaða frá þeim degi er hann verður vinnufær á ný fellur réttur hans til að geyma atvinnuleysistrygginguna niður. Vottorð sérfræðilæknis er annaðist hinn tryggða skal fylgja umsókn um atvinnuleysisbætur þar sem meðal annars skal koma fram hvenær hann varð óvinnufær og hvenær hann varð vinnufær á ný. Sjá nánar á heimasíðu Vinnumálastofnunar: www.vinnumalastofnun.is, sími 515 4800.

Heilbrigðisþjónusta fyrir atvinnulausa.

Einstaklingur sem verið hefur atvinnulaus í sex mánuði eða lengur samkvæmt staðfestingu Vinnumálastofnunar og hefur fengið skýrteini frá TR á rétt á heilbrigðisþjónustu á sömu kjörum og lífeyrisþegar. Staðfestingu Vinnumálastofnunar skal endurnýja á þriggja mánaða fresti.

gug/2011









Skipta um leturstærð


Leit