30.09 2009

Endurhæfing fyrir krabbameinssjúklinga

Landspítalinn í Fossvogi
Endurhæfing fyrir krabbameinssjúklinga er til húsa á fyrstu hæð (jarðhæð) Landspítalanum í Fossvogi, sími 543 9134. Endurhæfingin er niðurgreidd og þurfa sjúklingar að fá tilvísun frá lækni til að geta nýtt sér þjónustuna. Í endurhæfingunni er boðið upp á ráðgjöf, einstaklingsþjálfun, þjálfun í þreksal og meðferð við sogæðabjúg.

Endurhæfingin Grensási
Í sundlaug Landspítalans Grensási er boðið upp á hópþjálfun í laug tvisvar í viku, á miðvikudögum og föstudögum kl. 14.30. Upplýsingar veitir Mónika Karlsdóttir móttökustjóri í síma 543 9319 og Sigrún Knútsdóttir sjúkraþjálfari í síma 543 9104

Landspítalinn við Hringbraut
Í sjúkraþjálfun Landspítalans við Hringbraut er boðið upp á heilsurækt í tækjasal undir eftirliti sjúkraþjálfara tvisvar í viku. Boðið er uppá hópþjálfun og einnig er hringt í allar konur sem hafa farið í stærri aðgerðir vegna brjóstakrabbameins og þeim boðin þjálfun. Upplýsingar veitir móttökuritari í síma 543 9300.

Sjúkraþjálfun: Almennt komugjald í einstaklingsmeðferð er án afsláttar 2.930 kr. Fyrir endurhæfingar-, örorku-og ellilífeyrisþega er gjaldið 837 kr. Í hópmeðferð er almennt gjald 1.274 kr. og fyrir lífeyrisþega 3.645 kr. 

Iðjuþjálfun: Almennt komugjald í einstaklingsmeðferð er án afsláttar 2.842 kr. Fyrir lífeyrisþega er komugjaldið 812 kr. Í hópmeðferð er almennt gjald 1.235 kr. og fyrir lífeyrisþega 353 kr.

Félagsráðgjöf: Á Krabbameinsdeildum Landspítalans við Hringbraut eru starfandi félagsráðgjafar sem þjónusta krabbameinssjúklinga sem eru í læknismeðferð á Landspítalanum og fjölskyldur þeirra. Ekki er tekið gjald fyrir þjónustu félagsráðgjafa á meðan sjúklingur er í meðferð. Panta má viðtal við félagsráðgjafa í gegnum skiptiborð Landspítalans í síma 543 1000. Félagsráðgjafar veita aðallega aðstoð varðandi réttindamál og fjölskylduráðgjöf. Einnig hafa félagsráðgjafar á krabbameinsdeildum Landspítalans staðið fyrir opinni fræðslu fyrir sjúklinga um réttindamál.      

Sálfræðiþjónusta: Á Krabbameinsdeildum Landspítalans við Hringbraut eru starfandi sálfræðingar sem þjónusta krabbameinssjúklinga og aðstandur þeirra. Ekki er tekið gjald fyrir viðtöl á meðan sjúklingur er inniliggjandi en eftir útskrift er greitt samkvæmt gjaldskrá göngudeildar. Aðeins er greitt eitt gjald fyrir komu á göngudeild þó viðkomandi komi í viðtal hjá fleiri en einum fagaðila á Landspítalanum sama dag. Fullt komugjald á göngudeild er 2.600 kr. með afsláttarkorti 1.600 kr. Fullt gjald fyrir öryrkjar, börn og ellilífeyrisþega er 1.400 kr. og með afsláttarkorti 770 kr.
 
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Á Lyflækningadeildum sem og öðrum deildum sjúkrahússins á Akureyri (FSA) er starfandi félagsráðgjafi sem m.a. þjónustar krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra, bæði eftir aðgerð og meðan á lyfjameðferð stendur. Einnig stendur til boða eftirfylgni eftir að lyfjameðferð lýkur ef sjúklingur óskar. Félagsráðgjafi veitir persónulegan stuðning við sjúklinga sem og fjölskyldur þeirra jafnframt sem hann veitir sjúklingum og aðstandendum þeirra fræðslu og ráðgjöf m.a. vegna réttindamála. Hægt er að óska eftir þjónustu félagsráðgjafa beint í síma 463 0140 eða í gegnum hjúkrunarfræðinga/lækna á viðkomandi deildum.  Ekki er tekið gjald fyrir þjónustu félagsráðgjafa við krabbameinssjúklinga og fjölskyldur þeirra. 

Á Akureyri er endurhæfingardeild sem tók til starfa 1991 og fer starfsemi hennar fram bæði á Kristnesspítali í Eyjafjarðarsveit og í aðalbyggingu FSA á Akureyri. Á FSA er sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun veitt á bráðadeildum en á Kristnesspítala er 20 rúma legudeild sem nýtur starfskrafta félagsráðgjafa, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og talmeinafræðings.

gug/2011









Skipta um leturstærð


Leit