Dagskrá Ráðgjafarþjónustu og stuðningshópa Krabbameinsfélagsins 
8.-14. mars 2010:

 

Mánudagur 8. mars.
kl. 11.30-11.50: Qi Gong: Heilsu Qi Gong, ástundun tvisvar í viku. Allir velkomnir 
kl. 12.00-16.00: Einstaklingsdjúpslökun, 40 mínútna tímar. Skráning, sjá að neðan.                                 
kl. 16.15-17.00: Samhjálp kvenna. Leikfimi og sund, Hrafnistu í Hafnarfirði. Tvisvar í viku mánudaga og miðvikudaga í leikfimisal og sundlaug Hrafnistu í Hafnarfirði. Ætlað konum sem hafa farið í skurðaðgerð vegna brjóstakrabbameins. Skráning og upplýsingar hjá Maríu í síma 869 3629 og Lovísu 693 9563.
kl. 20.00-21.00: Göngum saman: Lagt af stað frá kirkjudyrum Hallgrímskirkju teygjur á eftir. Gengið er einu sinni í viku undir stjórn Guðnýjar Aradóttur stafagönguþjálfara á mánudögum. Göngustaður breytist á 3ja mánaða fresti. Allir velkomnir.

 

 

Þriðjudagur 09. mars.
kl. 09.00-16.00: Einstaklingsdjúpslökun, 40 mín. Skráning, sjá að neðan.
kl. 13.00-14.00: Sálrænn stuðningur og áfallahjálp
kl. 14.30-16.30: Samhjálp kvenna, viðtalstími (sími 540 1911).
kl. 20.00-22.00: Styrkur: Karlmenn og krabbamein Eiríkur Jónsson þvagfæraskurðlæknir. Í tilefni af árverknisátaki um karlmenn og krabbamein ræðir Eiríkur Jónsson þvagfæraskurðlæknir um krabbamein í blöðruhálskirtli, blöðru, nýrum og eistum. Allir velkomnir.

 

 

Miðvikudagur 10. mars. 
kl. 09.00-12.00: Einstaklingsdjúpslökun, 40 mín. Skráning, sjá að neðan.
kl. 11.30-11.50: Qi gong: Ástundun tvisvar í viku
kl. 12.00-13.00: Hádegisfyrirlestur: Karlmenn, krabbamein og kynlíf, Óttar Guðmundsson læknir.
kl. 13.00-14.00: Leiðir að betri líðan. Kynning á þjónustu sem er í boði.
kl. 16.15-17.00: Samhjálp kvenna. Leikfimi og sund, Hrafnistu í Hafnarfirði. Tvisvar í viku mánudaga og miðvikudaga í leikfimisal og sundlaug Hrafnistu í Hafnarfirði. Ætlað konum sem hafa farið í skurðaðgerð vegna brjóstakrabbameins. Skráning og upplýsingar hjá Maríu í síma 869 3629 og Lovísu 693 9563.
kl. 17.00-18.00: Góðir hálsar: Rabbfundur um blöðruhálskirtilskrabbamein.

 

Fimmtudagur 11. mars.
kl. 13.00-15.00: Styrkur: Viðtalstími (sími 540 1911).
kl. 16.30-18.30: Hugræn atferlismeðferð: fjórða skipti af sex. 

 

 

Á næstunni: 

 

 

Þriðjudagur 16. mars.
kl. 17:00-19:00: Samskipti foreldra og barna: Hvernig tala ég við barnið þegar náinn ættingi greinist með krabbamein, Guðrún Oddsdóttir, sálfræðingur.

 

Fimmtudagur 18. mars.
kl. 18.00-19.00: Ekklar og ekkjur. Félagsleg sorg.

 

Miðvikudagur 24. mars.
kl. 12.00-13.00: Hádegisfyrirlestur: Sjöfn Ágústsdóttir sálfræðingur, tjáning og krabbamein.
kl. 20.00-21.30: Ristilfélagið: Umræður um ristilskimun Ásgeir Theodórsson meltingarlæknir. 

 

Miðvikudagur 31. mars.
kl. 17.00-18.00: Stuðningshópur um eggjastokkakrabbamein: Rabbfundur.

 

Miðvikudagur 7. apríl.
kl. 12.00-13.00: Hádegisfyrirlestur: Valgerður S. Jónsdóttir B.A., M.Phil, hláturjóga.

 

Fimmtudagur 8. apríl.
kl 20:00-22:00: Stómasamtök Íslands: Félagsfundur.

 

Þriðjudagur 13. apríl.        
kl. 20.00-22.00: Styrkur: Aðalfundur.

 

Fimmtudagur 15. apríl.
kl. 17.00-19.00: Lífstré: Kynning á niðurstöðum rannsóknar, Herdís Jónasdóttir hjúkrunarfræðingur o.fl.

 

Fimmtudagur 6. maí.
kl. 18.00-19.00: Ekklar og ekkjur. Sumarið og sorgin.
kl. 20.00-22.00: Stómasamtök Íslands: Aðalfundur.

 

 

Þriðjudagur 11. maí.
kl. 20.00-22.00: Styrkur: Vorfagnaður.

 

 

Júlí og ágúst 2010.
Orlofsdvöl (hvíldardvöl) á Löngumýri í Skagafirði í er samstarfsverkefni Krabbameinsfélags Skagafjarðar, Dugs stuðningsfélags krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra í Skagafirði og kirkjunnar. Fyrst og fremst er hugmyndin að gefa fólki sem er á milli meðferða, hefur lokið meðferð eða fólki sem hefur lagt sig fram í starfi innan þessa málaflokks tækifæri til að safna kröftum og njóta samkenndar í góðu umhverfi með hæfilegri áreynslu, fræðslu og í návist maka eða aðstandenda. Lögð er áhersla á góðan mat, hreyfingu við hæfi, fræðsluerindi, helgistundir, kvöldvökur, en umfram allt jákvætt andrúmsloft og viðmót. Fjöldi gistirýma er 26 í 15 herbergjum. Reynt er að afla styrkja til að greiða niður dvölina en það hefur gengið illa að undanförnu og miðast því fimm daga dvöl eins og er við fullt verð 35.000 kr. (ferðir til og frá og skoðunarferðir eru ekki innifaldar). Orlofsdvölin er ætluð fólki af öllu landinu. Sumarið 2010 verður boðið upp á a.m.k. eitt 5 daga hvíldartímabil fyrir krabbameinssjúklinga dagana: 26. - 31. júlí. Fyrir ekkjur og ekkla yrði síðan eitt 5 daga tímabil: 8. – 13. ágúst.  Nánari upplýsingar fást hjá Maríu Reykdal, formanni Dugs, í síma 863 6039 og hjá Gunnari Rögnvaldssyni staðarhaldara á Löngumýri í síma 453 8116.

 

 

Upplýsingar um fasta dagskrárliði:

Einstaklingsdjúpslökun:
Ásdís Káradóttir hjúkrunarfræðingur með nám í sálgæslu og viðbótarmeðferð og Jóna Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur eru með einstaklingstíma í djúpslökun í 40 mínútur í senn. Jóna hefur unnið lengst af á líknardeild- og rabbameinsdeildum Landspítalans.
Meðferðin er veitt á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum og er án endurgjalds. Tímapantanir í síma 800 4040 eða á netfang asdisk@krabb.is

 

Hugræn atferlismeðferð. Bætt hugsun – betri líðan. Nýtt námskeið hefst 18. febrúar og verður á milli kl. 16:30-18:30. Námskeiðið er einu sinni í viku og stendur í sex vikur. Markmiðið er m.a. að leggja áherslu á styrkleika fólks og það sem gefur lífi þátttakenda gildi.  Leiðbeinandi: Eggert Birgisson sálfræðingur. Þátttaka er ókeypis. Sex fimmtudaga. Námskeiðisgögn kosta kr. 1500.

 

Hægt er að bóka viðtöl og námskeið:
hjá hjúkrunarfræðingi í síma 540 1916 eða á netfangi ragnalf@krabb.is  
og hjá félagsráðgjafa í sími 540 1912 eða á netfangi una@krabb.is
Öll þjónusta að kostnaðarlausu.

 






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit