15.10 2009

Matur sem vinnur gegn krabbameini

Út er komin bókin Bragð í baráttunni - matur sem vinnur gegn krabbameini. Höfundar bókarinnar eru Richard Béliveau, prófessor í lífefnafræði við Quebec-háskóla í Montreal í Kanada og leiðandi aðili í krabbameinsransóknum þar í landi, og Denis Gingras, sérfræðngur í sameindalíffræði við sama skóla. Bókin heitir á frummálinu Cooking with Food that fights Cancer. Þýðandi er Þórunn Hjartardóttir.

Í kynningarátak JPV segir. "Bókin hefur vakið athygli víða um heim, enda er hér um tímamótarit að ræða. Bókin, sem er aðgengileg, litrík og listilega hönnuð, hefur að geyma ítarlega umfjöllun um ýmis hráefni í matargerð sem talið er að geti unnið gegn myndun krabbameina. Þar eru einnig að finna yfir 160 gómsætar uppskriftir sem auðvelt er að fara eftir.
Með hjálp þessarar bókar getur fólk breytt matarræði sínu og lífsstíl á áhrifaríkan hátt, en slíkt er af mörgum talið afar mikilvægur þáttur í baráttunni gegn krabbameini."

Matreiðslunámskeið Bragð í baráttunni

Námskeið þar sem fræðsla og matreiðsla fer saman verða haldin 4. nóvember og 2. desember nk. Markmiðið er að þátttakendur læri og fræðist um mat sem vinnur gegn krabbameini. Stuðst verður við uppskriftir úr bókinni Bragð í baráttunni. Kennari er Unnur Guðrún Pálsdóttir, Lukka.

Næring og bætiefni

Manneldisráð. Greinar um hollt mataræði má finna á vefsíðu Lýðheilsustöðvar http://www.manneldi.is/greinar/naering-og-holdafar/nr/206
Vítamín. Yfirlit og upplýsingar um vítamín má finna á vefsíðunni http://www.doktor.is/likami_naering/flokkur.asp?rid=46
Á vefsíðu Heilsuhússins má finna upplýsingar um holl næringarefni og mataruppskriftir, www.heilsa.is
Holl næring. Sólveig Eiríksdóttir, www.himneskt.is
Maður lifandi, www.madurlifandi.is
Blóðflokkamataræði, www.blodflokkar.is

Jane Plant: “Your life in your hands” www.janeplant.com setur fram ákveðnar kenningar um mjólkurvörur.
Á vefsíðu Krabbameinsfélagsins Framfarar má finna mikið af upplýsingum varðandi mataræði sem vinnur gegn krabbameini www.framfor.is Framför lét m.a. þýða bókina „Bragð í baráttunni“ þar sem greint er frá fæðutegundum talið er að vinni gegn vexti krabbameinsæxla.
Heilsubankinn. Á vefsiðum heilsubankans má m.a. finna góðar upplýsingar um holla næringu, vítamín og hreyfingu,  http://www.heilsubankinn.is

gug/2011









Skipta um leturstærð


Leit