Mikilvægt að fá góðan stuðning þegar krabbamein greinist.
Almennt er litið á það sem mikið áfall að greinast með krabbamein og að því fylgi mikið álag fyrir viðkomadi einstakling og fjölskyldu hans. Rannsóknir hafa sýnt að fagleg aðstoð og stuðningur geta minnkað álagið og skilað sér í bættum lífsgæðum fyrir sjúklinginn og aðstandendur hans.
Í krabbameinsmeðferð á Landspítalanum fá krabbameinssjúklingar stuðning fagfólks á meðan á læknismeðferð stendur og auk hefðbundinnar læknisþjónustu er sjúklingum boðið að ræða við næringarfræðing, félagsráðgjafa, sálfræðing eða prest. Í framhaldi af krabbameinsmeðferð á Landspítalanum eiga krabbameinssjúklingar kost á sjúkra- og iðjuþjálfun á endurhæfingardeild Landspítalans.
Erlendar rannsóknir sýna að erfiðasti tíminn í sjúkdómsferli krabbameinssjúklinga er þegar beðið er eftir niðurstöðum úr sýnatökum og rannsóknum og einnig eftir að krabbameinsmeðferð á spítala er lokið. Þá er fólk oft læknað líkamlega en á eftir að vinna sig út úr áfallinu sem fylgir greiningu krabbameinsins og stundum einnig hliðarverkunum sem fylgja lyfja- og geislameðferð. Því er ráðlegt að byrja strax að vinna úr áfallinu og auka þannig andlegan vellíðan á meðan á læknismeðferð stendur.
Mikið álag fylgir því að greinast með krabbamein.
Álag sem fylgir sjúkdómnum getur haft áhrif á geðslag viðkomandi einstaklings og valdið vonleysi, depurð og þunglyndi. Álagið getur einnig valdið einkennum á borð við svefntruflanir, spennu í vöðvum, eirðarleysi og lystarleysi (Snorri Ingimarsson, 2003).
Þá hafa erlendar rannsóknir á gagnsemi þátta í endurhæfingu krabbameinssjúklinga sýnt að fræðsla er sá þáttur í stuðningi við krabbameinssjúklinga sem gagnast þeim best og að fræðsla um sjúkdóminn þarf að vera sniðin að þeirri tegund krabbameins sem viðkomandi hefur greinst með (Fawzy et al., 1999). Því er mikilvægt að fólk leiti sér aðstoðar og fái þá fræðslu og upplýsingar sem til staðar eru í samfélaginu.
15.10 2009 - Fimmtudagur
Út er komin bókin Bragð í baráttunni - matur sem vinnur gegn krabbameini. Höfundar bókarinnar eru Richard Béliveau, prófessor í lífefnafræði við Quebec-háskóla í Montreal í Kanada og leiðandi aðili í krabbameinsransóknum þar í landi, og Denis Gingras, sérfræðngur í sameindalíffræði við sama skóla. Bókin heitir á frummálinu Cooking with Food that fights Cancer. Þýðandi er Þórunn Hjartardóttir.
02.12 2009 - Miðvikudagur
Hægt er að fá erfðaráðgjöf Landspítalanum varðandi áhættu á því að greinast með krabbamein.
Tímapantanir og kostnaður:
Ekki þarf sérstaka tilvísun í erfðaráðgjöf og getur hver og einn pantað viðtal.
Símar í afgreiðslu erfðaráðgjafar eru 543 5070, 543 5032 og 824 5574 og tölvupóstur: esd@landspitali.is
Greiða þarf komugjald á göngudeild. Einnig þarf að greiða blóðtökugjald þegar blóð er tekið vegna erfðarannsókna.
Heimasíða erfðaráðgjafar er: http://landspitali.is/Pages/13460