Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er upplýsinga- og stuðningsþjónusta fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. 

 

Opið frá kl. 9 - 16 virka daga á fyrstu hæð í Skógarhlíð 8, Reykjavík

Markmið Ráðgjafarþjónustunnar er að aðstoða fólk við að ná jafnvægi í lífinu eftir þær breyttu aðstæður sem greining krabbameins veldur.

Í Ráðgjafarþjónustunni getur fólk hitt hjúkrunarfræðinga, félagsráðgjafa og fleiri fagaðila. Þar er einnig hægt að hitta fólk sem farið hefur í gegnum krabbameinsmeðferð og læknast. 

í Ráðgjafarþjónustunni er boðið upp á fræðslu, viðtöl, faglega ráðgjöf, sálgæslu, djúpslökun, ýmis námskeið og hagnýtar upplýsingar. Húsnæðið er heimilislegt og þar er hægt er að setjast niður og fá sér hressingu. Þar er einnig aðgengi að tölvu og prentara.

 

Jafningjafræðsla

Stuðningshópar Krabbameinsfélagsins eru með aðstöðu í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar og veita þar jafningjafræðslu sem felur í sér samtöl við fólk sem hefur gengið í gegnum krabbameinsmeðferð og hefur raunverulegan skilning á því hvernig upplifun það er að vera í þessum aðstæðum.

 

Þjónustan er fólki að kostnaðarlausu.  Gjaldlaus símaráðgjöf og símsvari: 8004040

 

Nánari upplýsingar veita:

Ragnheiður Alfreðsdóttir hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður þjónustunnar sími 540 1916, netfang ragnalf@krabb.is 

Ásdís Káradóttir hjúkrunarfræðingur netfang asdisk@krabb.is

Gunnjóna Unu Guðmundsdóttur félagsráðgjafi sími 540 1912, netfang una@krabb.is

 

 



Næstu atburðir




   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit