Undirskriftasöfnun stendur nú yfir til að vekja athygli á leghálskrabbameini og baráttunni gegn því. Markmiðið er að safna milljón undirskriftum um alla Evrópu en þetta er liður í áskorun Evrópusamtakanna ECCA (European Cervical Cancer Association) sem berjast fyrir því að allar evrópskar konur hafi sama rétt til bestu fáanlegra forvarna gegn leghálskrabbamein.
Nú vantar um 20.000 undirskriftir til að markmiðinu um eina milljón undirskrifta sé náð. Í heild taka 44 þjóðir taka þátt í áskoruninni. Nú þegar hafa rúmlega 8.500 Íslendingar skráð sig á áskorunarlistann en til að komast í annað sæti á evrópska listann vantar rúmlega 700 undirskriftir. Undirskriftasöfnunni lýkur 28. janúar.
Krabbameinsfélag Íslands hvetur landsmenn alla til að taka þátt í undirskriftasöfnunni til að veita öllum evrópskum konum jafnan aðgang og bæta greiningarmátt leitarinnar.
| Sæti | Land | Íbúafjöldi | Undirskriftir | % mannfjölda |
| 1. | Tékkland | 10,532,770 | 417,280 | 3.962% |
| 2. | Portúgal | 10,636,979 | 301,714 | 2.836% |
| 3. | Ísland | 317,398 | 8,569 | 2.700% |
| 4. | Slóvenía | 2,012,917 | 32,874 | 1.633% |
| 5. | Króatía | 4,637,460 | 74,834 | 1.614% |
| 6. | Litháen | 3,244,601 | 22,931 | 0.707% |
| 7. | Bosnía | 4,048,500 | 9,470 | 0.234% |
| 7. | Serbía | 7,250,000 | 15,629 | 0.216% |
| 7. | Slóvakía | 5,470,306 | 10,654 | 0.195% |
| 7. | Írland | 4,048,500 | 10,654 | 0.195% |