Kristján Sigurðsson, yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins var í viðtali hjá Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í gær, 24. janúar 2012, í tilefni af því að nú stendur yfir evrópsk átaksvika gegn leghálskrabbameini.
Í viðtalinu greinir Kristján m.a. frá því að formleg leit að leghálskrabbameini hófst hjá Krabbameinsfélaginu1964. Í kringum 1980 var tekið eftir því að fjöldi nýrra leghálskrabbameina hækkaði allskyndilega á 4 ára tímabili samfara því að allstór hluti kvenna mætti óreglulega eða aldrei til leitar en einnig var raunveruleg hækkun forstigsbreytinga hjá yngri konum er tengist aukinni tíðni HPV veirunnar. Ástæða þess er lífsstílsbreytingar hjá konum en veiran berst með kynsmiti. Um 80% kvenna fá þessa veira einhvern tíma á lífsleiðinni. Því hefur verið tekið á það ráð að bólusetja allar stúlkur á aldrinum 12 og 13 ára hér á landi.
Leghálskrabbamein er annað algengasta krabbamein hjá konum í heiminum. En tíðni þess hefur lækkað mjög á Íslandi en lækkun nýgengis þess er fyrst og fremst talin stafa af því að konum á Íslandi hefur boðist að taka þátt í skipulagðri leghálskrabbameinsleit frá árinu 1964. Hins vegar er nú verið að greina leghálskrabbamein sem er lengra gengið og á það rætur að rekja til þess að konurnar koma óreglulegar eða sjaldnar til leitar. Allar konur á aldrinum 20-69 ára eru boðaðar í leit á tveggja ára fresti á vegum Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins.
Janúar er evrópskur mánuður sem snýr að baráttunni gegn leghálskrabbameini í því skyni að skapa jafnan aðgang að leit og bólusetningu. Undirskriftum er safnað á
www.cervicalcancerpetition.eu til að vekja athygli á leghálskrabbameini og baráttunni gegn því. Á Íslandi er lægsta dánartíðni vegna leghálskrabbameins í Evrópu en ein af hverjum hundraðþúsund deyr að völdum leghálskrabbameins á Íslandi en til að halda þessum góða árangri skiptir að sjálfsögðu sköpum að konur mæti í leghálskrabbameinsleit.
Vinsamlegast smellið
hér til að hlusta á viðtalið við Kristján Sigurðsson.