Vísdómsperlan

Evrópuvika gegn leghálskrabbameini dagana 21 .– 28. janúar:

  • Vísdómsperlur seldar til styrktar árveknisáteki gegn leghálskrabbameini 25.000 konur deyja úr leghálskrabbameini árlega í Evrópu 
  • Ungar konur eru í áhættuhópi en mæta síður í skoðun 
  • Í Evrópu deyja 25.000 konur á ári hverju úr leghálskrabbameini þrátt fyrir að auðvelt sé að koma í veg fyrir slík krabbamein með reglubundinni skoðun eða bólusetningu. 
  • Árleg árveknisvika, Evrópuvika gegn leghálskrabbameini, verður haldin 21.-28. janúar og er hægt að kaupa Vísdómsperlur hjá Krabbameinsfélagi Íslands, Skógarhlíð 8 og á vef Krabbameinsfélagsins  http://www.krabb.is/styrktarmal/verslunkrabbameinsfelagsislands/Skart. Ágóðinn rennur til styrktar leghálskrabbameinsleit Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins.
  • Undirskriftum safnað á www.cervicalcancerpetition.eu til að vekja athygli á leghálskrabbameini og baráttunni gegn því. 

Íslendingar eru meðal fremstu þjóða þegar kemur að forvörnum á þessu sviði en skipuleg leghálskrabbameinsleit Krabbameinsfélagsins hófst árið 1964. Hún hefur leitt til þess að mun færri konur fá þennan sjúkdóm en áður eða deyja úr honum. Í kjölfar skipulegrar leitar hafi tíðni leghálskrabbameins lækkað um 68% og dánartíðni um 87%.Átakinu er ætlað að auka árvekni fyrir leghálskrabbameini, hversu auðvelt sé að koma í veg fyrir það með reglubundnum skoðunum og til að hvetja konur til að mæta í slíkar skoðanir. Þá er Evrópuvikunni einnig ætlað að þrýsta á stjórnvöld í löndum þar sem ekki er boðað til reglulegrar skoðunar.

Ungar konur í aukinni áhættu

Það er hins vegar áhyggjuefni að þeim konum sem nýta sér þessa auðveldu en árangursríku heilsuvernd fer fækkandi, sérstaklega hjá yngsta aldurshópnum. Það mæta einungis um 58% kvenna á aldrinum 20-24 ára í skoðun þrátt fyrir að fleiri ungar konur greinist nú með leghálskrabbamein en áður. HPV veiran er frumorsök leghálskrabbameins en hún smitast við kynmök. Veiran er mjög algeng meðal ungra kvenna og eru allt að 45-50% kvenna innan við 25 ára með hana. Í flestum tilfellum ræður líkaminn sjálfur niðurlögum veirunnar en í sumum tilfellum veldur hún frumubreytingum sem geta þróast í leghálskrabbamein og koma þá oft aðrir þættir við sögu, til að mynda reykingar. Eftir því sem konur eldast finnast færri með veiruna en einungis um 5-10% 45 ára kvenna greinast með hana. Þess vegna skiptir það sérstaklega miklu máli fyrir ungar konur að mæta í leghálsskoðun.

Einföld og óþægindalítil rannsókn

Leghálsstrok er einföld og óþægindalítil rannsókn sem tekur stutta stund. Skoðun á frumum sem fást með strokinu sýnir hvort þar er að finna forstigsbreytingar eða leghálskrabbamein á frumstigi. Meðferð á þessum fyrstu stigum er einföld og árangursrík og veldur konunni litlum vandkvæðum. 

Pantaðu tíma: 

Tekið er við tímapöntunum í síma 540 1919 kl. 8:30 til 16:00 alla virka daga. Einnig er hægt að panta tíma á netinu http://www.krabb.is/Leitarstod/Panta-skodun.  

26.01 2012 - Fimmtudagur

Ísland gæti endað í öðru sæti

Undirskriftasöfnun stendur nú yfir til að vekja athygli á leghálskrabbameini og baráttunni gegn því. Markmiðið er að safna milljón undirskriftum um alla Evrópu en þetta er liður í áskorun Evrópusamtakanna ECCA (European Cervical Cancer Association) sem berjast fyrir því að allar evrópskar konur hafi sama rétt til bestu fáanlegra forvarna gegn leghálskrabbamein.

Nú vantar um 20.000 undirskriftir til að markmiðinu um eina milljón undirskrifta sé náð. Í heild taka 44 þjóðir taka þátt í áskoruninni. Nú þegar hafa rúmlega 8.500 Íslendingar skráð sig á áskorunarlistann en til að komast í annað sæti á evrópska listann vantar rúmlega 700 undirskriftir. Undirskriftasöfnunni lýkur 28. janúar.
23.01 2012 - Mánudagur

Fleiri alvarleg tilvik krabbameins

Krabbameinsfélagið hvetur konur til að taka þátt í áskorun Evrópusamtakanna ECCA (European Cervical Cancer Association) sem berjast fyrir því að allar evrópskar konur hafi sama rétt til bestu fáanlegra forvarna gegn leghálskrabbamein. Kristján Sigurðsson, yfirmaður leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins segir um árlegt átak að ræða. Markmiðið sé að safna einni milljón áskorana sem er sá fjöldi sem þarf til að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins taki málið á málefnaskrá sambandsins en borist hafi beiðni frá ECCA um aðstoð við að safna undirskriftum á Íslandi fyrir „STOP Cervical Cancer Petition“ sem hvetur Evrópuþingið, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og ríkisstjórnir allra landa í Evrópu til að veita öllum evrópskum konum jafnan aðgang og bæta greiningarmátt leitarinnar.


Leggðu okkur lið

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

 

kt. 700169-2789
bankareikningur: 0301-26-000706

Markaðsstjóri
Sandra Sif Morthens
sandra@krabb.is







Skipta um leturstærð


Leit