Í október síðastliðnum var haldin góðgerðarvika í Kampi sem er sameiginleg félagsmiðstöð Austurbæjar-, Háteigs- og Hlíðaskóla en um var að ræða keppni milli skólanna. Nemendur í Austurbæjarskóla ákváðu að safna til góðgerðarmála og var Krabbameinsfélagið og verkefnið Bleika slaufan fyrir valinu þar sem góðgerðarvikan var haldin 10. til 14. október.
Nemendur byrjuðu vikuna á að setja upp töflu þar sem nemendur skrifuðu stig fyrir góðverk sín, t.d. hrós, hjálpa hvert öðru og tína upp rusl. Einnig fengu nemendur stig ef þeir gáfu pening til góðgerðarmála og rann það til Krabbameinsfélagsins.
Á miðvikudeginum, 12. október, mættu nemendur í bleiku í skólann til að sýna stuðning, sungu afmælissönginn fyrir Guðmund skólastjórann sinn inn á myndband og um kvöldið hittust þau í félagsmiðstöðinni 100og1 og bjuggu til bleikan brjóstsykur. Brjóstsykurinn var seldur bæði á kennarastofunni og í frímínútunum, þau skrifuðu fallegar orðsendingar til hvors annars á „post-it“ miða og gáfu frí knús.
Síðasta dag vikunnar fóru krakkarnir úr nemendaráðinu með afmælisgjöfina til skólastjórans, en hún innihélt tvo brjóstsykurspoka, myndband með afmælissöngnum og risastórt kort með undirskrift allra nemendanna úr unglingadeildinni. Einnig mynduðu nemendur úr unglingadeild Austurbæjarskóla eitt risastórt hjarta.
Austurbæjarskóli vann góðgerðarvikuna með miklum yfirburðum og þegar allt var tekið saman var níundi bekkurinn með flest stig. Góðgerðar-, kærleiks- og gleðivikan heppnaðist mjög vel og söfnuðu nemendurnir alls 11.132 krónur fyrir Krabbameinsfélagið.