Evrópusamtökin ECCA (European Cervical Cancer Association:
http://www.ecca.info) berjast fyrir því að allar evrópskar konur hafi sama rétt til bestu fáanlegra forvarna gegn leghálskrabbameini.
Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur borist beiðni frá ECCA um aðstoð við að safna undirskriftum á Íslandi fyrir "STOP Cervical Cancer Petition" sem hvetur Evrópuþingið, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og ríkisstjórnir allra landa í Evrópu til að veita öllum evrópskum konum þennan rétt.
Markmið ECCA er að ná einni milljón áskorana en þann fjölda þarf til að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins taki þetta mál á málefnaskrá sambandsins. Krabbameinsfélagið hvetur konur til að taka þátt í þessari áskorun með því að rita nafn sitt á
Einnig er unnt að sýna stuðning með því að festa kaup á Vísdómsperlunni sem er auðkennismerki átaksverkefnisins en perlan fæst keypt hjá Krabbameinsfélaginu að Skógarhlíð.