27.01 2011

Hársnyrtistofan Sjoppan styrkir Krabbameinsfélag Íslands

Þann 24. nóvember síðastliðinn hélt Kristján Aage Hilmarsson, hárgreiðslumaður á Sjoppunni, ásamt félögum sínum á hárgreiðslustofunni Sjoppunni, góðgerðadag til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Þá var ár liðið síðan að Kristján missti móður sína úr krabbameini en hún hafði barist við sjúkdóminn í tvö ár. 

Kristján og félagar hans á Sjoppunni ákváðu að bjóða upp á klippingu allan daginn gegn frjálsu framlagi og allt féið rynni beint til Krabbameinsfélags Íslands. Í viðtali við www.visir.is þann 23. nóvember sagði Kristján: „Ég er elstur af fjórum systkinum og þó að þetta sé búið að vera erfitt fyrir mig er þetta búið að vera enn erfiðara fyrir yngri systkini mín. Þetta er búið að vera átakanlegt ár ... þetta er mjög útbreiddur sjúkdómur og snertir marga.“

Starfsmenn Sjoppunnar eru níu og höfðu þeir nóg að gera þennan daginn. Alls söfnuðust 160.500 krónur yfir daginn í gegnum frjáls framlög bæði með klippingu og án klippingar. 

Starfsfólk Krabbameinsfélags Íslands þakkar Kristjáni og starfsfélögum hans á Sjoppunni innilega fyrir að halda góðgerðadaginn og stuðninginn, og þakkar sömuleiðis viðskiptavinum þeirra einstaklega vel fyrir. 


Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðsstjóri Krabbameinsfélags Íslands, tekur á móti styrknum af Kristjáni og Emil frá hársnyrtistofunni Sjoppunni. 



Leggðu okkur lið

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

 

kt. 700169-2789
bankareikningur: 0301-26-000706

Markaðsstjóri
Sandra Sif Morthens
sandra@krabb.is







Skipta um leturstærð


Leit