Kastað til bata 2010

Kastað til bata – endurhæfing fyrir konur sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini á vegum Krabbameinsfélags Íslands og styrktaraðila.

12.-14.júlí 2010.

Umsóknir þurfa að berast Krabbameinsfélaginu ekki síðar en 25.júní nk.

Kastað til bata er endurhæfing sem Krabbameinsfélag Íslands býður konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini. Farið verður í þriggja daga ferð í júlí norður í Laxárdal. Markmið þessa boðs Krabbameinsfélagsins er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi Laxár, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu - og veiða urriða, ef heppnin er með. Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu og sjúkraþjálfari, sem einnig er vanur fluguveiðimaður verður til halds og trausts. Í kastæfingum verður tekið mið af líkamlegri getu þátttakenda. Á staðnum verða félagar úr Samhjálp kvenna, félagi til stuðnings konum sem fengið hafa brjóstakrabbamein og starfsfólk Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.

Gert er ráð fyrir þátttöku fjórtán kvenna. Gist er í tveggja manna herbergjum og á boðstólum verður ljúffengur og hollur matur í anda krása úr matreiðslubókinni Bragð í baráttunni.

Ferðin tekur þrjá daga, flogið verður til Akureyrar að morgni 12. júlí, staldrað við á Akureyri þar sem sóttur er veiðibúnaður sem fenginn er að láni frá Ellingsen og síðan ekið að Rauðhólum í Laxárdal þar sem hópurinn gistir.

Á bökkum Laxár gefst konum tækifæri til að gleyma sér í kyrrð og ró í stórbrotinni náttúrufegurð Laxárdals og sækja styrk til kvenna með svipaða reynslu, sem eru sáttar við breytingar sem sjúkdómurinn olli og eru tilbúnar að miðla af sinni reynslu. Síðast en ekki síst er tilgangurinn sá að njóta gleðinnar sem því fylgir að kasta flugu, renna fyrir silung, vaða tært vatn Laxár og endurnærast á sál og líkama. Á þriðja degi verður síðan ekið aftur til Akureyrar og flogið heim að kvöldi til.

Konur sem hafa hug á að taka þátt í Laxárferðinni eru beðnar að senda umsókn til Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins fyrir 25. júní. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Krabbameinsfélagsins, www.krabb.is. Í Ráðgjafarþjónustunni eru veittar nánari upplýsingar í síma 540-1900. Þátttakendur á höfuðborgarsvæðinu hittast á undirbúningsfundi í Ráðgjafarþjónustunni fyrir ferðina.

Þessi ævintýraferð sem Krabbameinsfélagið kallar “Kastað til bata” er þátttakendum með öllu kostnaðarlaus.

Samstarfsaðilar Krabbameinsfélagsins í þessu verkefni eru:

Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Ellingsen, Veiðihornið, Flugfélag Íslands, Icelandair, Veiðihúsið Rauðhólum, Vífilfell, Heilsa, Nettó, Lýsing, Landsnet, Alþýðusamband Íslands, Atlantsolia, Fálkinn, Icepharma, Danfoss, Vistor og Bjarni Höskuldsson og félagar leiðbeina um veiðisvæðið.

Umsækjendur þurfa að senda tölvupóst á Ragnheiði Alfreðsdóttur hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, ragnalf@krabb.is þar sem fram koma eftirfarandi upplýsingar:

Nafn,

Heimilisfang,

Kennitala,

Heimasími,

Farsími,

Hvenær brjóstakrabbameinsmeðferð lauk (mánður og ár),

Hvaða tegund brjóstakrabbameinsmeðferðar (aðgerð, lyf, geislar),

200 orða greinargerð um hvers vegna umsækjandi vill taka þátt í verkefninu, 

Hvernig metur umsækjandi líkamlegt ástand sitt til þess að taka þátt til endurhæfingarverkefni á borð við Kastað til bata?


Nánari upplýsingar veita:
Gústaf Gústafsson markaðsstjóri Krabbameinsfélagsins í síma 540-1926, 662-4156 og á netfangið gustaf@krabb.is.
Ragnheiður Alfreðsdóttir, Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í síma 540-1916 og á netfangið ragnalf@krabb.is.
Guðrún Sigurjónsdóttir, Samhjálp kvenna í síma 898-1712 og á netfangið samhjalp@krabb.is.
 

17.08 2011 - Miðvikudagur

Kastað til bata konur fá inngöngu í Stangaveiðifélag Reykjavíkur

Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur boðið þeim Kastað til bata konum sem nýverið fóru í veiði í Elliðaánum fría inngöngu í félagið og frí félagsgjöld út árið. 


Leggðu okkur lið

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

 

kt. 700169-2789
bankareikningur: 0301-26-000706

Markaðsstjóri
Laila Sæunn Pétursdóttir
laila@krabb.is







Skipta um leturstærð


Leit