Kastað til bata
Kastað til bata – endurhæfing fyrir konur sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini á vegum Krabbameinsfélags Íslands og styrktaraðila.
Kastað til bata er samstarfsverkefni Krabbameinsfélags Íslands, Samhjálpar kvenna og styrktaraðila þar sem konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini er boðið í veiðiferð.
Markmið þessa boðs er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu og veiða, ef heppnin er með. Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu og verður tekið mið af líkamlegri getu þátttakenda. „Að veiða er að vona“. Á staðnum verða einnig félagar úr Samhjálp kvenna, félagi til stuðnings konum sem fengið hafa brjóstakrabbamein og starfsmaður frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.
Sjá nánar um umsóknir og verkefnið 2012