Happdrætti

Dregið 17. júní í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins

Stuðningur við margþætta starfsemi


Nú er verið að senda út miða í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins. Í því fá karlmenn heimsenda miða. Vinningar eru að þessu sinni 187 talsins að verðmæti um 31,6 milljónir króna. Aðalvinningurinn er Toyota Auris Hybrid að verðmæti um 4,6 milljónir króna. Annar aðalvinningurinn er bifreið eða greiðsla upp í íbúð að verðmæti ein milljón króna. Sjötíu og fimm vinningar eru í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur. Einnig eru 110 vinningur í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 17. júní.

Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein veigamesta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. Fræðsla um krabbamein og krabbameins¬varnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir, stuðningur við krabbameinssjúklinga, leit að krabbameini og rannsóknir eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhagsstuðningi við félagið.

Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Happdrættismiðarnir eru sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka/netbanka og eiga jafnframt möguleika á glæsilegum vinningum. Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8. Upplýsingar eru gefnar í síma 540 1900. Einnig má hafa samband ef óskað er eftir að borga með greiðslukorti. Krabbameinsfélagið hefur haft það fyrir venju í marga áratugi að hringja í vinningshafa og tilkynna þeim um vinninga. Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur umsjón með framkvæmd og rekstri happdrættis Krabbameinsfélagsins.

Ár hvert greinast að meðaltali rúmlega 1.400 manns með krabbamein hér á landi. Hjá körlum er krabbamein í blöðruhálskirtli algengast og brjóstakrabbamein hjá konum. Í öðru sæti er lungna-krabbamein hjá báðum kynjum og ristilkrabbamein í því þriðja. Nú eru um 11.800 einstaklingar á lífi sem fengið hafa krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins.

17.05.2013.

 

 

 

27.12 2012 - Fimmtudagur

Dregið í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins

Dregið hefur verið í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins. Vinningar voru alls 204 að verðmæti um 31,2 milljónir króna. Aðalvinningurinn, að verðmæti 3.990.000 króna, var Audi A1 Sportback frá Heklu. Annar aðalvinningurinn var greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna. Sextíu vinningar voru í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur. Einnig voru 142 vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. Vinningarnir eru skattfrjálsir.

Vinningaskráin er hér.

06.12 2012 - Fimmtudagur

Dregið á aðfangadag í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins

Nú hafa verið sendir út miðar í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins. Nú fá konur senda miða og eru vinningar 204 talsins að verðmæti um 31,2 milljónir króna. Aðalvinningurinn, að verðmæti 3.990.000 króna, er Audi A1 Sportback frá Heklu. 


Happdrætti Krabbameinsfélagsins

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is 

kt. 700169-3329
bankareikningur: 0301-26-000402

Tengiliður:
Guðlaug B. Guðjónsdóttir
gbg@krabb.is







Skipta um leturstærð


Leit