Erfðagjafir

Margir óska eftir því að styðja góðan málstað með erfðagjöf. Nokkrir velunnarar hafa arfleitt Krabbameinsfélagið að hluta eða öllum eigum sínum og bera þessar gjafir einstaka hlýhug og velvilja í garð Krabbameinsfélagsins. 

Með því að gefa til Krabbameinsfélags Íslands getur þú tekið þátt í því að bæta hag næstu kynslóðar.

Upplýsingar varðandi erfðagjafir

14.02 2012 - Þriðjudagur

Krabbameinsfélagið fékk tvær stórar erfðagjafir á síðasta ári

Allt frá stofnun Krabbameinsfélags Íslands hefur félagið notið mikils velvilja almennings og af og til berast félaginu erfðagjafir. Á síðasta ári, sem var sextíu ára afmælisár félagsins, bárust tvær veglegar erfðagjafir, annars vegar samkvæmt erfðaskrá Andrésar Tómassonar, hins vegar samkvæmt erfðaskrá Baldurs Pálmasonar og Guðnýjar S. Óskarsdóttur. Krabbameinsfélagið er mjög þakklátt fyrir þann hug sem þau hafa borið til félagsins, en slíkar erfðagjafir skipta mjög miklu máli fyrir starfsemi félagsins.  


Leggðu okkur lið

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

 

kt. 700169-2789
bankareikningur: 0301-26-000706

Markaðsstjóri
Sandra Sif Morthens
sandra@krabb.is







Skipta um leturstærð


Leit