Bleikar sögur

Í síðari hluta októbermánaðar safnaði Krabbameinsfélag Íslands í samvinnu við Rás 2 og Pressuna bleikum örsögum.  Markmiðið var að fá sögur frá konum og gefa þeim tækifæri á að koma sinni sögu eða reynslu annarra á framfæri svo að aðrar konur geti tekið sögurnar með sér í veganesti. Sögurnar áttu að snúa að að heilbrigði og heilsu kvenna, sögur tengdar krabbameinum hjá konum eða sögur sem varpa ljósi á aðra reynslu kvenna af sjúkdómum.

Fimm sögur voru síðan dregnar út og lesnar upp í Virkum dögum á Rás 2 og birtar á www.pressan.is, www.krabb.is og www.facebook.com/bleikaslaufan. Fengu þær heppnu gjafapakka frá Krabbameinsfélaginu fyrir sig og vinkonuhóp sinn.

Útdregnu sögurnar ásamt hinum sögunum sem bárust félaginu eru birtar hér að neðan.

11.11 2010 - Fimmtudagur

Þrefaldur sigurvegari

 Hún var sannkölluð hetja sem kenndi okkur að takast á við mótlæti með æðruleysi og gefast aldrei upp enda ekki hver sem er sem getur státað af því að hafa sigrast þrisvar á krabbameini. Þrátt fyrir að vera með alvarlegan, meðfæddan sjúkdóm sem gerði það að verkum að ónæmiskerfið hennar var næstum óstarfhæft tókst henni þrisvar að vinna bug á alvarlegu krabbameini.
11.11 2010 - Fimmtudagur

Besta kvöld ævi minnar

Fyrir  um 10 árum gekk ég og maðurinn minn út frá lækni mínum eftir að hafa fengið þær upplýsingar
að sýnitaka úr brjósti væri illkynja og að ég ætti að leggjast inn í aðgerð.








Skipta um leturstærð


Leit