Bleika boðið 2010
Krabbameinsfélag Íslands býður þér á konukvöld í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík, 22. október 2010. Boðið hefst með fordrykk kl. 20:00 og síðan tekur við fjölbreytt dagskrá til kl. 23:30. Léttar veitingar. Aðgangur ókeypis.
Happdrætti með glæsilegum vinningum til styrktar Krabbameinsfélaginu.
Látum gleðina taka völd og skemmtum okkur saman eina kvöldstund.
Dagskrá í Háskólanum í Reykjavík, föstudaginn 22. október.
Húsið opnar kl. 20.00 - Léttar veitingar frá GJ veitingum.
Veislustjórn: Friðrika Hjördís Geirsdóttir (Rikka) og Jón Jósep Snæbjörnsson (Jónsi)
Ýmsir skemmtilegir viðburðir þar sem fjöldi landsfrægra listamanna mun leggja sitt af mörkum, svo sem tónlistarfólk og dansarar. Tískusýning íslenskra hönnuða frá Fatahönnunarfélagi Íslands:
Andersen&Lauth, Arna Sigrún, Beroma, Birna, Diza by Alprjón, Dua/SKAPARINN, Emami, Eygló, Farmers Market, Forynja, Gust, Hanna Felting, jbj Design, Kiosk, Luka Art&Design, María Lovísa, Mundi Vondi, My beautiful Raven / Anna design, Nostrum, REY, Rosa Design, Royal Extreme, Shadow Creatures SF, Stella Bára Design.Fatnað sýna fyrirsætur frá Eskimo models. Umsjón: Guðrún Möller
Happdrættismiðar, fallegar vörur og viðbótarveitingar fyrir þá sem vilja til sölu á staðnum.
Viðburðastjórn: Consept Events
Styrktaraðilar Bleika boðsins eru m.a.: Arion banki, Athygli, Blómahönnun, Exton, Garri, Grænn markaður, hárgreiðslustofan Eplið, Háskólinn í Reykjavík, HN markaðssamskipti, Hreyfill-Bæjarleiðir, Ístak Ístex, Lýsi, Mjólkursamsalan, Stjarnan (Subway), TVG-Zimsen, Verkís og Vífilfell.
Krabbameinsfélagið þakkar kærlega öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn við að gera Bleika boðið að veruleika.
Hægt er að sækja um miða á www.bleikabodid.is