Aðrar vörur

Ýmis fyrirtæki leggja Bleiku slaufunni lið og selja sínar eigin vörur eða þjónusta og rennur hluti ágóðans til Krabbameinsfélagsins:

Hreyfill:

Af hverri ferð sem að Hreyfill/Bæjarleiðir fer á tímabilinu 1. október til 30. nóvember. Allir leigubílarnir taka gula hattinn ofan og setja þann bleika upp til að greina sig frá öðrum. 10 krónur af hverri ferð í bleikum bíl renna til Krabbameinsfélagsins. Auk þess selja leigubílastjórarnir Bleiku slaufuna á tímabilinu 1. til 15. október.

Ísmar/Olís:

Ísmar og Olís selja Streamlight vasaljósin til styrktar Krabbameinsfélaginu. Streamlight framleiðandinn í Bandaríkjunum sem framleiðir mjög breiða línu hvers konar vasa- og leitarljósa fyrir atvinnufólk, hefur um árabil styrkt slíkar rannsóknir með sölu á þessum ljósum á heimsvísu.

Ísmar og Olís hafa gert samkomulag sín á milli um að Olís selji vasaljósin í mörgum sölustöðum sínum um land all en einnig verða ljósin til sölu hjá Ísmar og Krabbameinsfélaginu.

Bleika slaufan vörumerkið kemur á þessum ljósum á litlum skildi sem festur er við það. Ljósin eru seld í október eða á meðan á bleika mánuðnum stendur.

Krabbameinsfélagið mun aðstoða við alla kynningu á ljósinu til fjölmiðla, á samskiptamiðlum og annars staðar sem unnt er að fá ókeypis kynningu. Ef Olís eða Ísmar fara í auglýsingar í tengslum við vasaljósið skal samþykkis leitað hjá markaðsstjóra Krabbameinsfélagsins á efni sem ætlað er til birtingar þar sem vörumerki Krabbameinsfélagsins þ.á.m. bleika slaufan eru notuð eða upplýsingar úr samningi þessum.

Áætlað er að ein sölueining kosti 2000 krónur með VSK út úr búð .









Skipta um leturstærð


Leit