Bleika slaufan

Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Styðjið baráttuna gegn krabbameinum og hafið slaufuna ykkar sýnilega í októbermánuði.
14.03 2012 - Miðvikudagur

Styrkur afhentur vegna Bleika töltmótsins

Þann 19. febrúar s.l á Konudaginn var haldið hið árlega Bleika Töltmót í Reiðhöllinni Víðidal í samstarfi við Hestamannafélagið Fák.  Mót þetta er fyrir konur eldri en 17 ára og haldið til styrktar rannsókna á brjóstakrabbameini.  Allur ágóðinn af mótinu rennur óskiptur til Krabbameinsfélags íslands og væri náttúrulega ekki hægt nema með aðstoð fjölda fólks og fyrirtækja sem styrkja þetta framtak. 
13.02 2012 - Mánudagur

Krabbameinsfélagið styrkt með Gotti

Hönnunarfyrirtækið FærID afhenti Krabbameinsfélaginu nýlega framlag vegna sölu á Gott fyrir Gott, slaufunammi til stuðnings Bleiku slaufunni. Um er að ræða verkefni sem hófst fyrir haustið 2010, en Gott fyrir Gott var selt í 15g og 100g pokum um land allt og var allur ágóði til styrktar Krabbameinsfélaginu. 

Það eru Herborg Harpa Ingvarsdóttir og Þórunn Hannesdóttir sem standa á baki verkefninu og var markmið þeirra að víkka markhóp bleiku slaufunnar og vinna hugmynd þar sem Bleika slaufan væri fyrir alla. Þær afhentu nýverið Krabbameinsfélaginu framlag að upphæð einni milljón króna. 


Leggðu okkur lið

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

 

kt. 700169-2789
bankareikningur: 0301-26-000706

Markaðsstjóri
Laila Sæunn Pétursdóttir
laila@krabb.is







Skipta um leturstærð


Leit