Meistararitgerð Kristínar Skúladóttur fjallar um kostnað við meðferð krabbameins í ristli og endaþarmi og hvort sá kostnaður réttlætir kostnað skimunar. Ritgerðina má
sjá hér í heild sinni
Bakgrunnur
Nýgengi krabbameins í ristli og endaþarmi hefur aukist umtalsvert á Íslandi á undanförnum áratugum. Um alvarlegan sjúkdóm er að ræða en búast má við að tæplega helmingur þeirra sem greinast deyi úr sjúkdómnum. Miklar framfarir hafa orðið í meðferð, en þeim hefur jafnframt fylgt mikill kostnaðarauki. Með skimun er unnt að greina sjúkdóminn á fyrri stigum og meðhöndla hann með minni kostnaði. Skimun hefur ekki hafist hér á landi enn, sem væntanlega má rekja til þess kostnaðar sem henni fylgir. Í þessu verkefni er reynt að leggja mat á kostnað vegna meðferðar á krabbameini í ristli og endaþarmi á Íslandi. Jafnframt er bent á hvernig lækka mætti þennan kostnað með skimun.
Niðurstaða
Niðurstaðan er sú að beinn kostnaður við meðferð sjúklinga með krabbamein í ristli og endaþarmi, sem fengu þjónustu á Landspítalanum árið 2008, var 547.453.110 krónur. Líklegt er að sá kostnaður sé vanáætlaður. Áætlað var að kostnaður vegna meðferða þeirra sjúklinga sem fengu hluta eða alla sína meðferð utan Landspítala væri um fjórðungur af þessari upphæð. Því gæti heildarkostnaður við meðferð sjúklinga árið 2008 numið nær 684.000.000 krónum. Bent er á að skimun getur lækkað nýgengi auk þess sem þeir sem greinast með krabbamein, greinast af lægra stigi en ella og því getur skimun verið kostnaðarhagkvæm.