
Nick Cariglia, forstöðulæknir lyfjadeildar á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) og Guðjón Kristjánsson, yfirlæknir speglunar á FSA voru í viðtali þann 26.05.2011 á Sjónvarpsstöðinni N4. Þar kemur m.a. fram að 133 Íslendingar greinast með ristilkrabbamein á hverju ári og 54 deyja af völdum sjúkdómsins árlega og er það meira en einn einstaklingur á viku.
Meðal annars kemur fram í viðtalinu að ristilkrabbamein er að verða stöðugt algengara og getur það verið umhverfi eða lífsstíll sem hefur áhrif á það sem og erfðir, það eru helmingslífslíkur hjá þeim sem greinast og því nauðsynlegt að vera vakandi fyrir einkennum. Síðustu 50 ár hafa ristilkrabbameinstilvik þrefaldast hjá karlmönnum og tvöfaldast hjá konum.
Stefanía Hauksdóttir, sem greindist með ristilkrabbamein í júní 1990, greindi einnig frá reynslu sinni í viðtalinu.
Sjá má umfjöllunina
hér í fullri lengd.