Þriðjudaginn 23. febrúar: kl. 17.00-18.30
Farið verður yfir þætti er lúta að öryggi notkunar náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna og hvaða atriði þarf að hafa í huga við lestur greina og auglýsinga varðandi málefnið. Í lokin verða skoðuð dæmi með áðurnefnda þætti í huga.
Það er æskilegt að þátttakendur á seinna kvöldinu hafi verið með á fyrra kvöldinu eða þekki grundvallarþætti í lyfjafræði þar sem efni seinna kvöldsins byggir á þáttum frá því fyrra.
Hvatt er till umræðna og spurninga á meðan fyrirlestrum stendur.
Öllum opið án endurgjalds