12.01 2010 - Þriðjudagur

Að leysa kraftinn úr læðingi

Innri og ytri fegurð: Að leysa KRAFTinn úr læðingi.
Gréta Sörensen tangó unnandi ætlar að deila því með okkur hvernig hún leitast við að virkja sinn innri kraft með uppbyggilegri hugsun að leiðarljósi. Þegar Gréta greindist með krabbamein leitaði hún vel og mikið inn á við.
Díana frá Útlitslækningu sýnir okkur möguleikana á míkrólitun (tattú) við augu, augabrúnir, vörtubaug á brjósti, á vörum og vegna öra. Eitthvað sem getur hentað öllum konum.
Í lokin munu Aníta Einarsdóttir og Hrönn Guðmundsdóttir fara yfir það hve hentugt það getur verið að nota slæður og hárföt í stað hárkolla í krabbmeinsmeðferð en slæður og klútar leika um hendur þeirra.

Fundurinn er kl. 20.00-22.00 og eru allir velkomnir.

 






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit