Sjálfstyrkingarnámskeið
Námskeið í sjálfsstyrkingu hefst mánudaginn 9. nóvember 2009 og verður milli kl. 10:30 – 12:00. Um er að ræða þriggja vikna námskeið, einu sinni í viku.
Farið verður í eftirfarandi efni:
1. hluti: Framkoma
2. hluti: Líkamstjáning
3. hluti: Raddbeiting
Námskeiðið er í umsjón Gunnjónu Unu Guðmundsdóttur félagsráðgjafa og verður haldið í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, fyrstu hæð.
Upplýsingar og skráning er hjá Gunnjónu Unu í síma 5401912 og á netfanginu una@krabb.is